Samherji hlýtur íslensku sjávarútvegsverðlaunin 2017 í tveimur flokkum – framúrskarandi fiskvinnsla og framúrskarandi skipstjóri.

- Verðlaunin voru veitt í 7 sinn í tengslum við Sjávarútvegssýninguna sem nú stendur yfir í Kópavogi. 

Framúrskarandi fiskvinnsla

Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja veitti viðtöku Íslensku sjávarútvegsverðlaununum í flokknum „Framúrskarandi fiskvinnsla

Verðlaunin eru veitt Samherja fyrir landvinnslu félagsins á Akureyri og Dalvík.  Verðlaunin eru fyrst og fremst viðurkennig á því frábæra starfi sem okkar starfsfólk innir af hendi allt árið um kring.

Í umsögn dómnefndar m.a. fram að „Samherji hlýtur viðurkenninguna fyrir að hafa um árabil verið í forystu í þróun tækni og tækja í fiskvinnslu.“

 

Framúrskarandi skipstjóri

IceFish_2017_awardsGuðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinsyni EA hlaut verðlaunin í flokkunum Framúrskarandi skipstjóri.

Við afhendinguna kom fram að „Guðmundur er einn af reyndustu og farsælustu skipstjórum íslenska flotans og skip undir hans stjórn hafa árum saman skilað mestu aflaverðmæti allra íslenskra fiskiskipa.“

Guðmundur hefur stýrt Vilhelm Þorsteinssyni EA frá árinu 2001 og verið starfsmaður Samherja frá árinu 1986.Við hjá Samherja óskum Guðmundi innilega til hamingju með þessa miklu viðurkenningu.