Nýi Kaldbakur EA 1 til Akureyrar

 kaldbakur_ea_1_Akureyri

Kaldbakur EA 1, nýr ísfisktogari Útgerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar á Akureyri á laugardag en 17 ár eru síðan nýsmíðað skip Samherja Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Akureyrar. Fjöldi Akureyringa var á bryggjunni að taka á móti skipinu og var öllum boðið um borð að skoða hið nýja skip.

Kaldbakur var smíðaður í Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og er 62 metra langur og 13,5 metra breiður. Skipstjórar verða Sigtryggur Gíslason og Angantýr Arnar Árnason, yfirvélstjóri er Hreinn Skúli Erhardsson en allir koma þeir af gamla Kaldbak sem nú hefur fengið nafnið Sólbakur. Í áhöfn verða um 13-15 manns. 

„Kaldbakur er á allan hátt afar vel útbúið skip“ segir Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja. „Mesti ávinningurinn af hönnun skipsins að okkar mati er skrokklagið og hve vistvænt skipið er. Skrokklagið er nýstárlegt og eykur sjóhæfni og orkunýtingu. Stefni eins og á þessum nýju skipum hleypir öldunni upp á nefið á stefninu án þess að brjóta hana. Þá er einnig mjög gott sjóstreymi að tiltölulega stórri skrúfu. Í öllu þessu er fólginn orkusparnaður“, segir Kristján Vilhelmsson.

Kaldbakur er fyrstur af fjórum systurskipum sem smíðuð eru hjá Cemre og fara tvö til Akureyrar, eitt til Dalvíkur og það fjórða til Fisk Seafood á Sauðárkróki.  Skipið er hannað af Verkfræðistofunni Skipatækni, Bárði Hafsteinssyni, starfsmönnum Samherja og sérfræðingum sem þjónusta flota Samherja. Skipin eru tæknilega fullkomin og áhersla hefur verið lögð á hagkvæmni í orkunýtingu og sjóhæfni. Til dæmis er mjög framúrstefnulegt hitaveitukerfi í skipinu, þar sem áhersla er lögð á að nýta afgangsvarma til upphitunar á vélbúnaði og vistarverum. Einnig býður kerfið upp á að tengjast hitaveitu í landi svo ekki þurfi að brenna olíu þegar skipið liggur við bryggju. Skipið verður að sjálfsögðu tengt rafmagni úr landi, meðan það liggur við bryggju.
Á næstu vikum verður búnaður settur upp á vinnsludekki og reiknað er með að Kaldbakur haldi til veiða í júní.

kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri


kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

 kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

 kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

kaldbakur_ea_1_Akureyri

Myndir: Þórhallur/Pedromyndir

kaldbakur_ea_1_Akureyri

Mynd: Landhelgisgæslan (frétt á síðu LHG)