Góð afkoma Samherja og dótturfélaga árið 2013

Vilhelm Þorsteinsson EA
Vilhelm Þorsteinsson EA

Helstu atriði:

  • Hagnaður ársins tæpir 22 milljarðar króna.
  • Hagnaður af sölu eigna 8,1 milljarðar króna.
  • Samherji greiðir 1,7 milljarð króna í tekjuskatt til Ríkissjóðs Íslands og 1 milljarð í veiðileyfagjald, samtals 2,7 milljarða.
  • Tæpur helmingur af starfsemi Samherja samstæðunnar er erlendis.
  • Félög Samherja starfa í ellefu löndum, gera upp í níu mismunandi gjaldmiðlum.

Samherji hf. er eignarhaldsfélag um eignarhluti í dóttur- og hlutdeildarfélögum sem flest tengjast sjávarútvegi og vinnslu afurða hérlendis og erlendis. Rekstur útgerðar og fiskvinnslu á Íslandi er í félögunum Samherji Ísland ehf. og Útgerðarfélag Akureyringa ehf. og rekstur fiskeldis er í félögum í eigu Oddeyrar ehf. Félög samstæðunnar starfa í ellefu  löndum og gera upp í níu mismunandi gjaldmiðlum. (EUR, USD, GBP, ISK, CAD, PLN, DKK, NOK og NAD). Samstæðureikningur Samherja er settur fram í evrum en í tilkynningunni eru tölur umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við meðalgengi ársins 2013 sem var 162 krónur á hverja evru.

Rekstur – Tekjur tæpir 90 milljarðar og allar afkomueiningar skiluðu hagnaði

Rekstrartekjur Samherja og dótturfélaga voru tæpir 90 milljarðar króna árið 2013 eins og árið áður. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 25,4 milljörðum króna, samanborið við 21,7 milljarða árið á undan. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 25,5 milljörðum og að teknu tilliti til tekjuskatts var hagnaður ársins 21,9 milljarðar króna. Þetta er fimmta árið í röð sem allar afkomueiningar samstæðunnar skila hagnaði.

Vilhelm_Thorsteinsson_EATraustur efnahagur

Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar í lok ársins 2013 samtals 110,7 milljörðum króna. Heildarskuldir og skuldbindingar á sama tíma voru 45,9 milljarðar og bókfært eigið fé 64,8 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 58,5% í árslok. Veltufjármunir námu 40,8 milljörðum króna og nettóskuldir samstæðunnar voru jákvæðar sem nemur 6,1 milljarði króna. Skuldir við innlendar lánastofnanir námu um 22 milljörðum króna í árslok og hafa lækkað um tæpa 5 milljarða króna það sem af er árinu 2014.  Skuldir við innlendar lánastofnanir hafa frá árslokum 2012 lækkað um ríflega 20 milljarða.

Fjárfest fyrir 5,1 milljarð króna

Fjárfestingar samstæðunnar á síðasta ári námu samtals 5,1 milljarði króna. Stærsta fjárfestingin á árinu 2013 var í línuskipinu Önnu EA sem keypt var frá Noregi. Skipið er gert út til línuveiða á Íslandi. Einnig var fjárfest í flutningaskipi sem flytur frystar afurðir á fjarlægari markaði í Afríku og Austur Evrópu. Aðrar fjárfestingar ársins voru flestar í framleiðslutækjum og breytingum á skipum, Frystitogarinn Baldvin NC sem er í eigu DFFU í Þýskalandi var meðal annars lengdur á árinu.

Umtalsverður söluhagnaður bætir afkomu

Eins og fram kom í fréttatilkynningu um afkomu ársins 2012 þá seldu dótturfélög Samherja hf. fimm skip og aðrar eignir sem tengjast útgerð við strendur Afríku.  Hagnaður af sölu þessara eigna nam 7,7 milljörðum fyrir tekjuskatt og hefur  hann veruleg áhrif á heildarafkomu félagsins.
„Rekstur okkar árið 2013 gekk að mörgu leyti vonum framar auk þess sem sala eigna hefur mikil áhrif á afkomuna sem er í heild mjög góð“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Thorsteinn_Mar_BaldvinssonHann segir að hins vegar séu alltaf blendnar tilfinningar þegar eignir séu seldar en á árinu voru eignir sem tengjast útgerð við Afríku og vörumerki seld og er þriðjungur hagnaðar ársins söluhagnaður vegna þess. „Við seldum góðar eignir sem búið var að leggja mikla vinnu í að breyta og bæta. Það er því alltaf ákveðin eftirsjá þegar horft er til baka og ekki síst í því góða fólki sem hafði tekið þátt í þessu með okkur. Efnahagur okkar og rekstur minnkaði umtalsvert í kjölfarið og verkefni okkar er að fylla í það skarð á næstu misserum.

Þorsteinn Már bendir á að tæpur helmingur af veltu samstæðunnar komi frá dótturfélögum Samherja erlendis og að þar hafi gengið mjög vel. „Veiðar hjá erlendum dótturfélögum okkar í Barentshafi gengu vel á árinu. Það hefur líka gengið vel í Namibíu þar sem við gerum út frystiskip og rækjuveiðar í Kanada gengu mjög vel eins og árið á undan.“

Mikill árangur á Íslandi

Hjá Samherja hf. og dótturfélögum starfa nú um 700 manns á Íslandi. Þorsteinn Már segir að margt hafi gengið vel hér heima. „Landvinnsla bolfisks í fiskvinnslum félagsins við Eyjafjörð hefur gengið vel.  Í þeim fiskvinnslum tókum við á síðasta ári á móti meira hráefni en nokkru sinni fyrr. Það er stórt verkefni að vinna verðmætar afurðir úr tæpum 30 þúsund tonnum af bolfiski á ári. Okkur tókst að fylgja þessari miklu framleiðslu eftir í markaðsstarfinu en þar teljum við vera mikil tækifæri í framtíðinni. Veiðar flestra tegunda á Íslandi gengu einnig vel. Aflaverðmæti Vilhelms Þorsteinssonar EA á árinu  var 4,3 milljarðar króna. Það er afbragðsgóður árangur sem ekki næst nema allir geri sitt besta, í veiðum, vinnslu, sölu og dreifingu.“

Höfuðstöðvar alþjóðlegs sjávarútvegsfyrirtækis á Íslandi

„Sá árangur sem starfsfólk Samherja hefur enn á ný náð er ekki síður markverður fyrir það að á sama tíma hafa stjórnvöld haldið áfram aðgerðum sínum gegn félögum í samstæðunni. Þessar aðgerðir hafa óhjákvæmilega tekið mikla orku og tíma frá stjórnendum og starfsfólki sem gjarnan vildi sinna uppbyggilegri hlutum. Ég er ekki tilbúinn að sætta mig við að höfuðstöðvar alþjóðlegs sjávarútvegsfyrirtækis geti ekki verið á Íslandi en umhverfið hér í dag er farið að hafa neikvæð áhrif og jafnvel hamla okkar starfsemi.

Ég hef sagt það oft áður að sjávarútvegur er alþjóðleg atvinnugrein. Velgengnin byggist að stórum hluta á þekkingu og áræði starfsfólksins, hvort heldur er í veiðum, vinnslu eða markaðssetningu. Þegar samviskusamt og duglegt fólk með mikla þekkingu úr skóla lífsins leggst saman á árarnar er hægt að ná afbragðsárangri,“segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Lykiltölur hér