Frosið verð frá upphafi og þannig verður það áfram
29.10.2026
Í dag, 29. október, er eitt ár liðið frá því að Besti bitinn af þorskinum fór á markað á Íslandi. Frá því að þessir frosnu þorskhnakkar frá Samherja komu í sölu í matvöruverslunum innanlands hefur heildsöluverð til verslana verið óbreytt. Samherji ætlar að gera enn betur og mun ekki hækka verð á vörunni til verslana næstu 12 mánuði til viðbótar.

