Aðstæður starfsfólks til mikillar fyrirmyndar

Björn Snæbjörnsson og Flosi Eiríksson
Björn Snæbjörnsson og Flosi Eiríksson

Fulltrúar Starfsgreinasambands Íslands kynntu sér starfsemi hátæknivinnsluhúss Samherja á Dalvík í dag en segja má að húsið hafi verið lokað svo mánuðum skiptir vegna heimsfaraldursins. Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambands Íslands, sem jafnframt er formaður Einingar-Iðju, segir aðstæður starfsfólks í húsinu til mikillar fyrirmyndar.

Vinnsla hófst í nýja hátæknivinnsluhúsinu í lok júlí á síðasta ári en vegna Covid-19 hefur starfsfólkið þurft að starfa við mjög svo krefjandi aðstæður. Til dæmis fengu engir utanaðkomandi að fara inn í húsið svo mánuðum skiptir.

Langflestir starfsmenn vinnslunnar á Dalvík eru í Einingu-Iðju og það var því við hæfi að fulltrúar stéttarfélagsins og Starfsgreinasambandsins kynntu sér starfsemina við fyrsta tækifæri og það gerðu þeir sem sagt í dag.

Það var Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja sem tók á móti Birni Snæbjörnssyni og Flosa Eiríkssyni framkvæmdastjóra Starfsgreinasambandsins.

Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja og Sigurður Jörgen Óskarsson yfirverkstjóri á Dalvík leiddu síðan skoðunarferðina um húsið.

 

Hljóðdempun og lýsing

„Stjórn Einingar-Iðju hafði skoðað húsið áður en vinnsla hófst í fyrra en heimsfaraldurinn hefur komið í veg fyrir heimsókn eins og í dag sem er sannarlega ánægjuleg og langþráð.

Öll tæknin hérna inni er mikil og magnað að sjá hversu íslenskt hugvit er áberandi. Maður tekur til dæmis strax eftir hljóðdempun í vinnslusölum, sem er gríðarlega stórt heilsufarsmál. Sömu sögu er að segja um lýsinguna, sem er mjög góð,“ segir Björn Snæbjörnsson.

 

Störfin breytast með aukinni tækni

Björn segir greinilegt að mjög hafi verið hugsað um vinnuaðstæður starfsfólks við hönnun hússins.

„Með aukinni tækni hafa flest störf í fiskvinnslu tekið miklum breytingum, sem eru mjög vel sýnilegar hérna. Störfin eru orðin sérhæfðari og um leið líkamlega léttari. Hérna eru allar aðstæður til mikillar fyrirmyndar.

Covid-19 gerði það að verkum að starfsfólkið hefur þurft að starfa við mjög svo krefjandi aðstæður og sem betur fer hefur tekist að halda vinnslunni gangandi. Það var gott að tækifæri gafst í dag til að spjalla við starfsfólkið og kynna sér alla tæknina og aðbúnaðinn í húsinu,“ segir Björn Snæbjörnsson.