Styrkir og auglýsingar

Samherji hf. er meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins og rekur útgerð, landvinnslu og fiskeldisstöðvar ásamt sölu og markaðssetningu. Starfsemi Samherja er umfangsmikil og hefur áhrif á samfélagið, fólkið og umhverfið þar sem starfsemin fer fram. Samfélagsþátttaka Samherja felur í sér margvíslegan stuðning við nærsamfélagið, svo sem í formi atvinnusköpunar, styrkveitinga og viðskipti við aðra atvinnurekendur á viðkomandi starfssvæði.

Samherji tekur við umsóknum um samfélagsstyrki allt árið. Miðað er við að úthlutanir fari fram þrisvar á ári, í námunda við 1. maí, 1. september og 1. desember. Unnið er úr umsóknum sem hafa borist fyrir lok mánaðarins á undan.

Stefna Samherja um samfélagsstyrki hér

Viðmið um veitingu samfélagsstyrkja

Samherji leitast við að styðja við verkefni sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif í nærumhverfi félagsins. Samfélagsstyrki eru veittir til skilgreindra verkefna, einstaklinga, hópa og félagasamtaka. Skilyrði er að styrkþegi sé ekki rekinn í hagnaðarskyni.

Við veitingu samfélagsstyrkja er áhersla lögð á:

  • Íþrótta- og tómstundastarf barna og unglinga
  • Velferðarmál
  • Verkefni með tengsl við sjávarútveg

Samherji veitir almennt ekki samfélagsstyrki til verkefna á borð við:

  • Íþrótta- og tómstundastarf fullorðinna
  • Náms- eða menningarferðir
 

    

     Umsókn um styrk                        Umsókn um Lógó