Áhöfn Kaldbaks EA 1 hélt litlu jólin í gær. „Kokkurinn fór gjörsamlega á kostum“

Jón Ragnar Kristjánsson kokkur leggur lokahönd á veislu kvöldsins
Jón Ragnar Kristjánsson kokkur leggur lokahönd á veislu kvöldsins

Áhafnir fiskiskipa Samherja hafa undanfarna daga haldið í þann góða sið að halda upp á litlu jólin, þar sem borð svigna undan kræsingum. Slíkar veislur kalla eðlilega á góðan undirbúning kokkanna, sem undirbúa innkaup aðfanga vel og vandlega áður en veiðiferðin hefst.

Sérstakur hátíðarmatseðill var útbúinn, rétt eins og á góðum veitingahúsum.

Sælir og saddir

„Við fórum út síðasta föstudag og erum á Reykjafjarðarðarálnum í blíðskaparveðri,“ segir Oddur Jóhann Brynjólfsson skipstjóri.

„Jón Ragnar Kristjánsson kokkur er mikill snillingur í matseld og hann náði sannarlega að gera kvöldstundina hátíðlega. Við erum þrettán í áhöfn og borðsalurinn var tvísetinn enda ekki gert hlé á veiðum. Venjulega tekur borðhald ekki mjög langan tíma en í gærkvöldi nutum við kræsinganna og leyfðum okkur njóta samverunnar. Svona hátíðarstund brýtur upp daginn og allir voru sælir og glaðir, enda allir réttirnir hjá Jóni Ragnari frábærir og fóru vel í maga. Hann fór gjörsamlega á kostum, við erum allir sammála um það. Áhafnir annarra skipa Samherja halda sömuleiðis sín litlu jól, sem er frábær og góður siður,“ segir Oddur Jóhann Brynjólfsson skipstjóri.

Heimasíða Samherja fékk sendar nokkrar myndir frá litlu jólunum í gær og eru þær meðfylgjandi.