Áhöfn Snæfells safnaði nærri hálfri milljón króna í Mottumars

Gylfi Víðisson og Hafþór Björnsson / myndir samherji.is/áhöfn Snæfells
Gylfi Víðisson og Hafþór Björnsson / myndir samherji.is/áhöfn Snæfells

Áhöfn Snæfells EA-310, frystitogara Samherja, tók þátt í Mottumars, árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands. Í upphafi var stefnan sett á að safna 250 þúsund krónum en niðurstaðan varð 471 þúsund krónur.

Snæfell kom til löndunar á Akureyri á mánudaginn. Skömmu fyrir upphaf veiðiferðarinnar afhenti Anna María Kristinsdóttir mannauðsstjóri áhöfninni Mottumarssokka en félagið færði öllum karlmönnum sem starfa hjá Samherja Mottumarssokka og styrkti þannig Krabbameinsfélagið.

Þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein

Gylfi Víðisson undirstýrimaður á Snæfelli segir að fljótlega hafi komið fram hugmynd um að taka þátt í skeggkeppni Mottumars og safna fyrir góðu málefni.

„Það var í raun Hafþór Björnsson háseti sem leiddi þetta og hvatti aðra í áhöfninni til dáða. Staðreyndin er að þriðji hver karlmaður greinist með krabbamein einhvern tímann á lífsleiðinni, þannig að þetta stendur okkur í raun nærri og áhöfnin var því sammála um að taka virkan þátt í Mottumars.“

Langt umfram væntingar

Hafþór Björnsson segir að söfnunin hafi farið tiltölulega rólega af stað en hafi tekið kipp er leið á veiðiferðina.

„Við skráðum okkur sem sagt til leiks og settum markmiðið á 250 þúsund krónur. Þegar líða fór á túrinn sendum við skilaboð til ættingja og vina um að taka þátt og í kjölfarið sáum við upphæðina hækka dag frá degi. Við endum í tæpri hálfri milljón króna og ég held að engum okkar hafi dottið í hug að þetta yrði niðurstaðan. Krabbameinsfélagið treystir á stuðning almennings og ég er viss um að þessir peningar koma að góðum notum.“

Áhöfnin stolt – margir með mottu

Þeir félagar segja að flestir í áhöfninni hafi safnað skeggi í túrnum.

„Já, já, þetta skapaði ákveðna stemningu og Mottumars-sokkarnir komu að góðum notum. Margir okkar skörtuðu flottum og metnaðarfullum mottum í lok veiðiferðarinnar og það verður spennandi að sjá hversu margar verða látnar fjúka í landlegunni. Þetta var skemmtilegt verkefni og jafnframt gefandi. Til þess að drífa svona söfnun áfram þarf helst að vera góð og jákvæð stemning og það er hún svo sannarlega um borð í Snæfelli. Við þökkum öllum þeim lögðu okkur lið í þessu mikilvæga árvekni- og fjáröflunarátaki, eitt er víst að áhöfn Snæfells EA-310 er ákaflega stolt af því að taka þátt í stuðningi við Krabbameinsfélag Íslands.“

Á föstudaginn mun Krabbameinsfélagið veita verðlaun til þeirrra liða sem tóku þátt í söfunarátakinu. 

Heimasíðan fékk sendar myndir af skipverjum Snæfells, sem skörtuðu þessum glæsilegu mottum.