Hagnaður af starfsemi Samherja hf. eftir skatta (án áhrifa og söluhagnaðar hlutdeildarfélaga) nam 5,5 milljörðum króna en árið á undan var hagnaðurinn 4,5 milljarðar króna.
Á árinu voru hlutabréf í Síldarvinnslunni hf. seld og nam söluhagnaður auk hlutdeildar í afkomu síðasta árs samtals 9,7 milljörðum króna.
Söluhagnaður og hlutdeild Samherja hf. í afkomu annarra hlutdeildarfélaga en Síldarvinnslunni hf. nam samtals 2,6 milljörðum króna.
Hagnaður samstæðunnar árið 2021 var í heild 17,8 milljarðar króna í samanburði við 7,8 milljarða árið 2020.
Þetta kom fram á aðalfundi Samherja hf. sem haldinn var á Dalvík 19. júlí s.l.
Samherji hf. stundar útgerð, fiskvinnslu, fiskeldi, sölu- og markaðsstarfsemi á sviði sjávarútvegs og annan skyldan rekstur.
Í ræðu Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja hf., kom fram að miklar fjárfestingar væru fyrirhugaðar í fiskeldi á komandi árum, allt að 60 milljarða króna.
„Við hjá Samherja höfum mikla trú á landeldi en öll uppbygging er gríðarlega fjárfrek. Þess vegna skiptir höfuðmáli að félagið sé fjárhagslega öflugt nú sem áður. Ársreikningur samstæðunnar sýnir að svo er. Aðalfundur félagsins ákvað að greiða ekki arð og beina fjárfestingarstyrk félagsins inn í ný verkefni á sviði sjávarútvegsins,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson.
Lykiltölur úr uppgjörinu
Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var níu milljarðar króna, sem er nánast sama EBITDA-afkoma og árið á undan. Á árinu voru hlutabréf í hlutdeildarfélögum seld og nam bókfærður hagnaður 7,1 milljarði króna. Þyngst vegur sala á 12% hlut í Síldarvinnslunni hf. Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga hafði einnig jákvæð áhrif hagnað ársins.
Fjöldi ársverka á árinu var 807 sem er svo að segja óbreyttur fjöldi miðað við árið á undan.
Heildarlaunagreiðslur á síðasta ári námu samtals 10,5 milljörðum króna og hækkuðu um tæplega 10% milli ára.
31% starfsmanna eru konur og 69% karlar. Hlutfall kvenna í stjórn félagsins er 40% og karla 60%.
Eignir í árslok námu 128 milljörðum króna og eigið fé var í árslok 94,3 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar í árslok var því 73,6%, miðað við 72% árið á undan, sem undirstrikar að efnahagur félagsins er traustur.
Upphæðir í rekstrarreikningi eru umreiknaðar í íslenskar krónur á meðalgengi ársins 2021 og upphæðir í efnahagsreikningi á lokagengi ársins 2021.
Metnaður og trúmennska starfsmanna.
"Við tókumst á við margar áskoranir á árinu 2021 eins og á hverju ári en samt verð ég að segja að það sem stendur upp úr eins og ævinlega er endalaus metnaður, dugnaður og útsjónarsemi starfsfólks Samherja. Á því byggist þessi góða afkoma. Ég er þakklátur fólkinu okkar fyrir framlag þess og óbilandi trúmennsku við Samherja,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri.
„Af einstökum þáttum er skráning Síldarvinnslunnar á almennan markað mikilvæg. Við höfum verið hluthafar þar frá aldamótum og stigum nú það skref að minnka hlut okkar eins og fleiri hluthafar. Við það gafst almenningi tækifæri á að koma til liðs við félagið og tók því sannarlega fagnandi, því um 6.500 nýir hluthafar bættust strax í hópinn. Þá eru ótaldir lífeyrissjóðirnir sem gæta hagsmuna tugþúsunda landsmanna. Þannig varð stór hluti þjóðarinnar þátttakandi í þessari mikilvægu atvinnugrein á fáeinum dögum. Það er afar ánægjulegt og felur í sér mikið traust fyrir þau sem hafa byggt félagið upp.“
Miklar fjárfestingar í landeldi
Fram hefur komið að Samherji hefur hafið undirbúning að umtalsverðu landeldi á Reykjanesi.
„Það er sannarlega eitt af stóru málunum frá síðasta ári,“ segir Þorsteinn Már.
Hækkandi olíuverð
„Olíukostnaðurinn hefur rokið upp úr öllu valdi en olía er næst stærsti kostnaður í útgerðinni á eftir launum. Hvernig verðið þróast í framtíðinni er með öllu óvíst og margir utanaðkomandi þættir hafa þar áhrif. Olíukostnaðurinn við útgerð Vilhelms Þorsteinssonar hækkar
Rannsókn á erlendri starfsemi
„Eins og alþjóð veit er starfsemi tengd dótturfélögum í Namibíu til rannsóknar. Mikilvægt er að halda því vandlega til haga að engir starfmenn á okkar vegum hafa verið ákærðir, ekki hefur verið óskað framsals á neinum okkar starfsmanna og í raun erum við ekki aðilar að refsimálinu sem rekið er gegn aðilum í Namibíu. Þeir hafa hins vegar setið í fangelsi í tvö og hálft ár án dóms. Rannsókn hér á landi hefur einnig staðið yfir í tvö og hálft ár án þess að nokkuð hafi komið fram sem gefur tilefni til að stimpla einstaka starfsmenn Samherja hf. sakborninga. Félagið hefur brugðist við þessum málum með ýmsum hætti og mun halda áfram að verja sakleysi sinna starfsmanna sem ég er sannfærður um að verða hreinsaðir að öllum ásökunum þegar upp er staðið. Í þessu sambandi er ánægjulegt að geta undirstrikað að samstarfsaðilar okkar um allan heim hafa haldið tryggð við okkur,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri meðal annars í ræðu sinni á aðalfundinum á Dalvík.
Arður ekki greiddur
Á aðalfundinum var ákveðið að greiða ekki út arð vegna síðasta árs og er þetta þriðja árið í röð sem arður er ekki greiddur.
Stjórn til næsta árs var kjörin á aðalfundinum. Í stjórn Samherja hf. eru:
Eiríkur S. Jóhannsson (formaður), Óskar Magnússon (varaformaður), Dagný Linda Kristjánsdóttir, Helga Steinunn Guðmundsdóttir og Kristján Vilhelmsson.