Aukin afkastageta í fiskeldisstöð Samherja í Grindavík

Um þessar mundir standa yfir framkvæmdir við fiskeldisstöð Samherja á Stað við Grindavík. Verið er að bora í þrjár nýjar sjóholur í hrauninu við stöðina.

Um er að ræða talsverða fjárfestingu til að auka afkastagetu stöðvarinnar. Tilgangurinn er að tryggja betur vatnsbúskapinn eftir stækkanir síðustu ára og undirbúa næsta áfanga stækkunar. Á Stað við Grindavík starfrækir Samherji bæði seiðastöð og áframeldi fyrir bleikju. Kviðpokaseiði eru flutt í seiðastöðina frá klakstöð fyrirtækisins að Núpum í Ölfusi. Seiðin eru alin í seiðastöðinni í 10-12 mánuði eða þangað til þau hafa náð 100 gr. að stærð. Þá eru þau flutt úr seiðastöðinni yfir í áframeldið sem er utandyra í kerjum á landi. Þegar fiskur nær tilskilinni stærð er hann svo fluttur lifandi í sérútbúnum tankbílum til slátrunar og vinnslu í Sandgerði.

Það er Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sem sér um boranirnar á nýju sjóholunum og þær hafa gengið vel þrátt fyrir að allir þurfi að breyta verklaginu sínu vegna núverandi ástands. Framkvæmdir eru langt komnar og á þeim að ljúka með virkjun nýrra hola fyrir lok júní næstkomandi.

Hjalti_Bogason_Samherji_Fiskeldi„Þetta mun auka afkastagetu fiskeldisstöðvarinnar umtalsvert en þetta er mikið vatnsmagn sem við erum að dæla. Þegar framkvæmdum lýkur mun stöðin geta dælt tveimur og hálfum rúmmetra af vatni á sekúndu,“ segir Hjalti Bogason rekstrarstjóri Samherja fiskeldis á Suðurnesjum. Nýlega fékk fiskeldisstöðin að Stað stækkun á rekstrarleyfi sínu í 3000 tonn og félagið er að auki með 1600 tonna leyfi að Vatnsleysu. Að sögn Hjalta mun fiskeldið á Suðurnesjum geta framleitt tæplega 4.000 tonn af bleikju þegar þessum hluta framkvæmdanna lýkur.

Samherji fiskeldi er stærsti framleiðandi bleikju í heiminum með um 3.800 tonn árlega en það er tæplega helmingur allrar eldisbleikju sem er framleidd á heimsvísu. Radarinn, mælaborð sjávarútvegsins sem rekið er af SFS, greindi nýlega frá því að útflutningsverðmæti eldisafurða hafi verið 25 milljarðar króna á síðasta ári. Það er 90% aukning frá fyrra ári og hefur útflutningsverðmætið aldrei verið meira.