Baldvin Þorsteinsson hefur tekið við sem forstjóri Samherja hf. Þorsteinn Már Baldvinsson, faðir Baldvins, hefur látið af störfum eftir að hafa gegnt starfi forstjóra í 42 ár eða frá stofnun félagsins árið 1983.
Þakklátur fyrir traustið
Stjórn Samherja gekk fyrr í mánuðinum frá ráðningu Baldvins sem segist þakklátur fyrir það traust sem sér sé sýnt með ráðningunni.
„Eins og margir Akureyringar byrjaði ég ungur að árum að vinna hjá Samherja og hef gegnt margvíslegum störfum hjá félaginu í gegnum árin. Ég hef því kynnst félaginu, innviðum þess og starfsfólkinu smám saman og nú síðustu tvö árin sem stjórnarformaður Samherja. Þá hefur náið samstarf okkar feðga verið mikilvægt og gefandi. Ég bind vonir við að þessi reynsla og ólík störf í atvinnulífinu á undanförnum árum verði gott veganesti fyrir mig í starfi forstjóra. Hjá fyrirtækinu er mikill mannauður, það skiptir auðvitað mestu máli,“ segir Baldvin.
Jón Sigurðsson formaður stjórnar Samherja
Jón Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Össurar hf. (nú Embla Medical) hefur tekið sæti Baldvins í stjórninni og er hann nýr stjórnarformaður Samherja hf. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jón tekur sæti í stjórn Samherja því hann var í stjórn félagsins um fjögurra ára skeið eftir síðustu aldamót frá 2002 til 2006.
Leiðandi í sjávarútvegi
Baldvin segist taka við öflugu búi og stefnan sé að byggja á þeim góða árangri sem náðst hafi á undanförnum árum.
„Samherji er leiðandi sjávarútvegsfyrirtæki á heimsvísu og frá fyrstu tíð hefur verið vel haldið á spilunum. Frá stofnun hefur verið lögð áhersla á að verja hagnaði félagsins til fjárfestinga í rekstrinum með endurnýjun skipa, byggingu nýrra vinnsluhúsa og innleiðingu tæknilausna sem margar hverjar hafa vakið alþjóðlega athygli. Félagið hefur í gegnum Samherja fiskeldi stundað landeldi á bleikju og laxi í tvo áratugi með góðum árangri. Við ætlum að taka þátt í þessari ört vaxandi grein með byggingu stórrar landeldisstöðvar á Reykjanesi og endurnýjun landeldisstöðvarinnar í Öxarfirði sem nú er að ljúka. Ég segi því hiklaust að Samherji sé frumkvöðull í alþjóðlegum sjávarútvegi.“
Valinn maður í hverju rúmi
Baldvin segir að áframhaldandi árangur félagsins muni byggjast á öflugri liðsheild.
„Hjartað í rekstrinum er að sjálfsögðu starfsfólkið. Árangurinn byggist fyrst og fremst á þekkingu og metnaði þess. Ég hlakka til að vinna við hlið öflugrar áhafnar, þar sem valinn maður er í hverju rúmi og margar áskoranir í farvatninu. Við keppum á alþjóðlegum mörkuðum og íslenskur sjávarútvegur hefur alla burði til að vera áfram leiðandi á heimsvísu að því gefnu að íslensk stjórnvöld búi greininni gott og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi,“ segir Baldvin.
Með fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu
Baldvin Þorsteinsson (f. 1983) er með Bsc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hóf störf hjá Samherja hf. eftir útskrift frá HÍ árið 2007. Áður hafði hann frá barnsaldri sinnt ýmsum störfum hjá Samherja og dótturfélögum.
Baldvin var forstjóri Jarðborana hf. frá 2013 til 2016 og sneri síðan aftur til Samherja þar sem hann var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar frá 2016 til 2019. Þá flutti hann til Hollands þar sem hann stýrði stofnun Alda Seafood og gegndi stöðu framkvæmdastjóra þess félags til ársins 2022 þegar hann flutti ásamt fjölskyldu sinni til Noregs til að stýra skrifstofu Alda Seafood í Osló.
Baldvin hefur setið í stjórnum fjölmargra félaga bæði hér á landi og erlendis. Hann var stjórnarformaður Eimskips hf. frá 2019 til 2022 eftir að hafa tekið sæti í stjórn félagsins 2018. Þá var hann í stjórn Olíuverzlunar Íslands (Olís) frá 2011 til 2018, þar af eitt ár sem stjórnarformaður. Baldvin situr í dag í stjórn Samherja fiskeldis ehf., Nergård AS í Noregi og er stjórnarformaður Alda Seafood í Hollandi.
Baldvin er fæddur og uppalinn á Akureyri og gekk í Menntaskólann á Akureyri áður en hann flutti suður til að hefja nám í HÍ.
Baldvin er kvæntur Þóru Kristínu Pálsdóttur og eiga þau þrjár dætur.