Bleiki dagurinn er í dag, 21. október, og af því tilefni var bleiki liturinn allsráðandi á starfsstöðvum Samherja.
Október er mánuður Bleiku slaufunnar sem er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Bleiki dagurinn er hápunktur átaksins og hefur fyrir löngu fest sig í sessi á starfsstöðvum Samherja.
Innan fyrirtækisins hafa byggst upp skemmtilegar hefðir í kringum þetta mikilvæga átak og leggur starfsfólk sitt af mörkum við að gera sem mest úr deginum, enda er þetta málefni sem skiptir okkur öll máli.
Starfsfólk sýndi samstöðu með því að mæta í bleikum fatnaði, setja upp bleikar skreytingar eða útbúa bleikar veitingar eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.






