Cuxhaven landar fullfermi á Akureyri

Cuxhaven við bryggju á Akureyri í morgun
Cuxhaven við bryggju á Akureyri í morgun

Togarinn Cuxhaven NC 100 kom til Akureyrar í morgun með um 300 tonn af ferskum fiski, aðallega þorski sem veiddur var við Grænland. Hráefnið fer til vinnslu í fiskvinnslu Útgerðarfélags Akureyringa á Akureyri og fiskvinnslu Samherja á Dalvík og verður fullunnin vara komin til erlendra kaupenda eftir örfáa daga.

Cuxhaven er í eigu Deutsche Fischfang Union í Þýskalandi, sem er dótturfélag Samherja. Skipið var tekið í notkun 2018 og er afar fullkomið, íslenska hátækni er víðast hvar að sjá um borð, svo sem öflugan vinnslubúnað. Hannes Kristjánsson skipstjóri segir að túrinn hafi gengið afskaplega vel.

Svo að segja fullfermi

„Við vorum um fjóra sólarhringa á veiðum og fiskurinn er mjög góður, fjögur og hálft til fimm kíló. Það tók okkur svo um sólarhring að sigla hingað til Akureyrar, löndun hófst strax og tekur um átta klukkustundir. Við getum sagt að þetta sé fullfermi, líklega vantar bara um fimmtán tonn til þess að allt pláss sé nýtt undir fisk.“

Cuxhaven gott skip

„Við vorum að taka 14-15 tonn í holi, þannig getum við tryggt hámarks gæði hráefnisins sem þetta allt saman snýst um. Við erum tuttugu í áhöfn og það er valinn maður í hverju rúmi, sem er lykilatriði. Cuxhaven hefur reynst mjög vel, togkrafturinn er mikill og skipið fer vel með mannskapinn og allur tækjabúnaður er af fullkomnustu gerð. Já, já, við höldum til veiða strax og búið er að landa, þannig að stoppið er ekki langt hjá okkur. Við erum allir klárir í næsta túr,“ sagði Hannes Kristjánsson skipstjóri á Cuxhaven.“