Ekkert peningaþvætti í viðskiptum DNB og Samherja

Ríkissaksóknari Noregs hefur fellt niður sakamál sem var til rannsóknar og beindist að norska bankanum DNB vegna viðskipta við félög tengd Samherja. DNB greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar í Osló í morgun. Rannsóknin varðaði meðal annars ásakanir um peningaþvætti en hún leiddi ekki í ljós neina refsiverða háttsemi sem gæti leitt til ákæru og því var málið fellt niður.

Samherji hefur legið undir þungum ásökunum um að hafa stundað peningaþvætti í gegnum DNB bankann vegna útgerðar í Namibíu. Því til stuðnings hafa fjölmiðlar, meðal annars hér á landi, vísað til rannsóknarinnar á DNB bankanum í Noregi. Niðurstaða ríkissaksóknara Noregs um niðurfellingu málsins sýnir að ekkert var hæft í þessum fullyrðingum.

Samherji fagnar þessari niðurstöðu enda hefur félagið ávallt haldið því fram að ásakanir vegna viðskipti tengdra félaga við DNB hafi verið tilhæfulausar. Mjög veigamikill þáttur í umfjöllun Ríkisútvarpsins um útgerðina í Namibíu varðaði umrædd viðskipti við DNB bankann. Þar voru upplýsingar um áreiðanleikakönnun bankans slitnar úr samhengi og lánveitingar, sem voru framkvæmdar til að tryggja að greiðslur bærust skipverjum á réttum tíma, gerðar tortryggilegar. Mjög alvarlegar ásakanir voru settar fram um þessi viðskipti, meðal annars að þau hafi falið í sér peningaþvætti.

Rannsókn á því máli sem hér um ræðir var í fyrstu á borði Økokrim sem hóf rannsókn á DNB bankanum eftir að ásakanir voru settar fram í umfjöllun Ríkisútvarpsins í nóvember 2019. Málið færðist síðan til embættis ríkissaksóknara Noregs í Osló sem hefur nú lokið rannsókn og fellt málið niður.