Rúmlega fjörutíu verkfræðingar á vegum færeyska fyrirtækisins SMJ heimsóttu Samherja fiskeldi á Suðurnesjum. SMJ kemur að hönnun mannvirkja Samherja fiskeldis, svo sem nýrra seiðisstöðva félagsins á Stað við Grindavík og Silfurstjörnunnar í Öxarfirði. Þá heimsótti sveitarstjórn Runavíkur í Færeyjum fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík, ásamt sendikvinnu Færeyja á Íslandi.
Persónuleg samskipti mikilvæg
Hjalti Bogason rekstrarstjóri Samherja fiskeldis segir að starfsmenn færeyska verkfræðifyrirtækisins í nokkrum þjóðlöndum hafi komið saman á Íslandi og meðal annars kynnt sér framkvæmdirnar á Stað.
„Við þekkjum ágætlega til þessa fyrirtækis, sem hefur verið samstarfsaðili okkar við uppbyggingu á starfseminni, nú síðast á Stað og í Öxarfirðinum. Með því að taka á móti hópnum skapaðist kærkomið tækifæri til að treysta samskiptin. SMJ er öflugt fyrirtæki á sviði verkfræðihönnunar og hefur víða komið við m.a. í uppbyggingu fiskeldisstöðva, enda fiskeldi gríðarlega stór og mikil atvinnugrein í
Aðbúnaður starfsfólks og hátæknin
Sveitarstjórn Runavikur í Færeyjum heimsótti fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík og kynnti sér starfsemina. Með í för var Halla N. Poulsen, sendikvinna Færeyja á Íslandi. Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja og Sigurður Jörgen Óskarsson framleiðslustjóri fiskvinnslunnar á Dalvík tóku á móti gestunum og sögðu frá starfseminni.
Vina- og frændþjóðir
„Fiskvinnsluhús Samherja er einstaklega glæsilegt og fróðlegt að sjá íslenska hátækni. Þið standið framarlega í þessum efnum og ég er viss um heimsóknin kemur til með að nýtast sveitarstjórn Runavíkur á ýmsan hátt. Samskipti Íslands og Færeyja hafa alltaf verið einstaklega náin og þessi heimsókn sýndi enn og aftur að við erum vina- og frændþjóðir,“ segir Halla N. Poulsen sendikvinna Færeyja á Íslandi.