Fiskurinn vinsælastur í mötuneyti ÚA – Uppskrift: Steiktur ÚA fiskur

Sigurður Már Harðarson matreiðslumeistari (myndir samherji.is)
Sigurður Már Harðarson matreiðslumeistari (myndir samherji.is)

Starfsmenn í fiskvinnsluhúsi ÚA á Akureyri eru á bilinu 110 til 120 og langflestir borða daglega í mötuneytinu.

Sigurður Már Harðarson matreiðslumeistari stýrir mötuneytinu og hann segir að eðli málsins samkvæmt sé nokkuð mismunandi hvaða réttir séu í uppáhaldi hjá svo stórum hópi. Fiskurinn njóti þó alltaf mikilla vinsælda, steiktur ÚA fiskur tróni líklega á toppnum. Sigurður gefur góðfúslega lesendum heimasíðunnar uppskriftina girnilegu.

Hægt að leika sér með fiskinn

„Já, það er náttúrulega þvílíkur lúxus að geta farið niður í vinnsluna og náð í brakandi ferskt hráefni, það eru ekki allir matreiðslumeistarar sem búa svo vel. Hérna er venjulega fiskur tvisvar sinnum í viku og stundum þrisvar sinnum. Oftast verður þorskur fyrir valinu hjá okkur eins og í dag, þorskurinn er mjög góður og hægt að leika sé með hráefnið á svo margvíslegan hátt,“ segir Sigurður.

Gamla góða soðningin nýtur vinsælda

Til þess að sjálf fiskvinnslan stöðvist ekki í hádeginu er nokkuð mismunandi hvenær fólk kemur í mat, frá klukkan 11:30 til 13:00.

„Starfsfólkið er ansi duglegt við að gauka að okkur uppskriftum og hugmyndum, sem við auðvitað tökum fagnandi. Fiskurinn er vinsælastur hjá okkur, allir elska fisk getum við sagt. Gamla góða soðningin fellur alltaf vel í kramið og sömu sögu er að segja um steikta ÚA fiskinn sem er reglulega á matseðlinum.“

Ekki ofelda fiskinn

„Það þarf að passa sérstaklega að ofelda ekki fiskinn, þá verður hann þurr. Ef maður er með hráefnið í ofni, þá er betra að lækka hitann og kynda ofninn svo vel skömmu áður en safaríkur fiskurinn er borðinn á borð. Líklega eru algengustu mistökin hjá fólki að ofelda, línan þarna getur reyndar verið nokkuð fín.“

 

 

Góð aðstaða

Sigurður segir að aðstaðan í mötuneytinu sé einstaklega góð.

„Já, hérna er svo að segja allt til alls, eldhúsið er stórt og gott og matsalurinn er rúmgóður og hlýlegur. Tækjalega erum við vel sett, fyrirtækið leggur mikla áherslu á að hérna sé allt til alls, þannig að við sem sjáum um matinn erum mjög sátt og ánægð með aðstöðuna.“

Einföld uppskrift sem slær í gegn

Eins og fyrr segir er steikti ÚA fiskurinn alltaf vinsæll og hérna er uppskriftin, Sigurður segir að hún sé einföld. „Þessi réttur klikkar aldrei hjá okkur og slær alltaf í gegn.“

Steiktur ÚA fiskur:

1 kg þorskhnakkar

150 gr hveiti

1 msk karrý

1 msk sítrónupipar

1 tsk cumin

1 tsk paprikukrydd

1 msk salt

½ tsk svartur pipar

Þurrefninu blandað saman og þorskurinn skorinn í hæfilega stóra bita. Velt uppúr kryddblöndunni og steikt á pönnu með olíu og smjöri. Klárið annað hvort á pönnunni eða í ofni á 160c í um 8 mín.

Parmesan kartöflur:

500 g kartöflusmælki

50 g parmesanostur

30 ml hvítlauksolía

Salt og pipar

Kartöflurnar eru soðnar og kramdar örlítið og lagðar á bökunarplötu. Hvítlauksolíunni hellt yfir og parmesanostur rifinn yfir, kryddað með salt og pipar. Bakað í ofni á 220c í um 20 mínútur og síðan borið fram.

Kóríander hvítlaukssósa

50 ml mæjones

50 ml sýrður rjómi

50 ml súrmjólk

10 g hvítlaukur

1 límóna

1 msk hunang

30 g kóriander

Salt og pipar

Öllu hrært saman í skál. Límónan kreist og börkurinn rifinn fínt saman við. Smakkið til með salti og pipar.

Gott er að gera sósuna deginum áður þannig hún fái að brjóta sig, hún verður betri fyrir vikið.

Borið fram með fersku salati og fetaosti.

Og við í mötuneyti ÚA segjum einfaldlega, „njótið vel“