Fyrrverandi framkvæmdastjóri kærður til lögreglu

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur lagt fram kæru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á hendur Jóhannesi Stefánssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra félaga sem tengjast Samherja og ráku útgerð í Namibíu, fyrir rangar sakargiftir vegna fullyrðinga um tilraun til manndráps og frelsissviptingar.

Lögmaður Þorsteins Más lagði kæruna fram í morgun. Tilefni kærunnar eru ýmis ummæli sem Jóhannes, eða fólk á hans vegum, hefur látið falla í fjölmiðlum og víðar að undanförnu vegna fjársöfnunar sem er hafin undir þeim formerkjum að tryggja þurfi Jóhannesi heilbrigðisþjónustu vegna eitrunar því íslenskt heilbrigðiskerfi ráði ekki við það verkefni að veita honum bót meina sinna. Þannig er berum orðum fullyrt á vefsíðu fyrir umrædda fjársöfnun að Jóhannes sé „fórnarlamb manndrápstilraunar“ sem hafi átt sér stað í Höfðaborg í Suður-Afríku snemma árs 2017 og segir Jóhannes í viðtali við namibískt dagblað að fyrrverandi vinnuveitandi hans „hafi haft fulla vitneskju“ um hana. Í öðru viðtali er svo haft eftir Jóhannesi að hann hafi þurft að þola tilraunir til mannráns oftar en einu sinni. Þessar fullyrðingar hans hafa svo margsinnis verið endurfluttar í öðrum fjölmiðlum bæði hér á landi og erlendis.

Í kærunni kemur fram að Jóhannes kunni að hafa með ummælum sínum gefið í skyn að forstjóri Samherja hafi á einhvern hátt tengst meintri eitrun og meintum tilraunum til að nema hann á brott. Þannig virðist Jóhannes vera að reyna að koma því til leiðar að forstjóri Samherja verði sakaður um þessi brot, þ.e. tilraun til manndráps og tilraun til frelsissviptingar eða einhvers konar hlutdeild eða tengsl við slík brot. Með þessu kunni Jóhannes að hafa gerst sekur um rangar sakargiftir í garð Þorsteins Más Baldvinssonar. Er þess krafist að lögreglurannsókn verði hafin, tekin verði skýrsla af Jóhannesi og gagna aflað frá suður-afrískum lögregluyfirvöldum. Þá er lögreglunni bent á það gæti talist eðlilegt að rannsaka í leiðinni hvort fjársvik hafi verið framin í tengslum við fjársöfnunina sem áður er getið.

Þótt fullyrðingar Jóhannesar Stefánssonar séu hreinn hugarburður, sem mun að öllum líkindum rýra trúverðugleika hans enn frekar, er ljóst að þær fela í sér mjög alvarlegar ásakanir í garð forstjóra Samherja. Með þeim gengur Jóhannes jafnframt mun lengra en áður hefur sést.

„Hingað til hef ég ekki brugðist sérstaklega við fullyrðingum og margvíslegum ásökunum Jóhannesar. Ég get hins vegar ekki lengur orða bundist því nú vill Jóhannes meina að ég eða samstarfsmenn mínir hafi gert tilraun til að ráða honum bana. Lengra verður ekki ekki gengið en að bera mönnum á brýn að ætla að ráða menn af dögum. Mér er gróflega misboðið og því er óhjákvæmilegt að spyrna við fótum. Þessu til viðbótar freistar Jóhannes þess nú að blekkja fólk til að leggja fé í söfnun undir þeim formerkjum að honum hafi verið sýnt banatilræði. Þetta er allt saman ósköp dapurlegt,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.

Það hefur vakið sérstaka athygli að Ríkisútvarpið hefur ekki séð ástæðu til að segja frá þessum fullyrðingum helsta heimildarmanns síns og samstarfsaðila enda er jafnvel þeim ljóst, eins og flestum öðrum, hvaða trúnað má leggja á þær.