Treyjudagurinn var haldinn í dag, í fyrsta sinn á Íslandi, til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Starfsfólk Samherja lét ekki sitt eftir liggja og mátti sjá hinar ýmsu litríku íþróttatreyjur á starfsstöðvum fyrirtækisins í dag.
Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til þess að sýna börnum með krabbamein stuðning og vekja um leið athygli á krefjandi og ófyrirsjáanlegum veruleika fjölmargra fjölskyldna. Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein og stendur málefnið því mörgum nærri.
Treyjudagurinn hefur um árabil verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. „Á örfáum árum hefur átakið sameinað þúsundir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein,“ segir á heimasíðu Treyjudagsins.
Nokkrar myndir fylgja sem voru teknar á starfsstöðvum Samherja í dag: