Samherjasjóðurinn styrkir kaup á nýjum snjótroðara

Nýr troðari er væntanlegur fljótlega á nýju ári
Nýr troðari er væntanlegur fljótlega á nýju ári

Samherjasjóðurinn styrkti í dag söfnun Skógræktarfélags Eyfirðinga á nýjum snjótroðara, sem ætlað er að þjónusta útivistarfólk sem heimsækir Kjarnaskóg við Akureyri.

Samherjasjóðurinn leggur til 3.000.000 krónur í söfnunina en auk þess mun sjóðurinn styrkja daglegan rekstur troðarans með 1.000.000  króna fjárframlagi.

Nýi troðarinn kostar um 35 milljónir króna og gerir aðkoma Samherjasjóðsins það að verkum að söfnunin telst vera langt komin.

Framkvæmdastjóri Skógtæktarfélags Eyfirðinga segir von á nýja snjótroðaranum fljótlega á nýju ári.

Núverandi snjótroðari Skógræktarfélags Eyfirðinga er kominn vel til ára sinna og annar illa hlutverki sínu. Því var ákveðið að efna til söfnunar á nýjum troðara, sem er vel útbúinn á allan hátt og getur því sinnt betur gestum Kjarnaskógar og því litríka og vaxandi útivistarlífi sem þeir stunda í skóginum árið um kring.

Næsta verk er að staðfesta pöntunina

„Þetta eru frábærar fréttir,“ segir Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga aðspurður um stuðning Samherjasjóðsins. Núna getum við sagt að þetta stóra verkefni sé svo að segja í höfn, næsta verk er væntanlega að staðfesta formlega pöntunina á troðaranum og ganga frá ýmsum lausum endum. Söfnunin hefur gengið mjög vel, sérstaklega undanfarna daga.“

Kjarnaskógur er paradís

 „Samherji hefur frá upphafi veitt styrki til ýmissa samfélagsverkefna og þannig lagt sitt af mörkum til að stuðla að framförum í samfélaginu og velferð komandi kynslóða. Rík áhersla hefur verið á sviði íþrótta- og æskulýðsstarfs en þó einnig á stuðning við önnur almenn verkefni, oftast heilsutengd. Kjarnaskógur er útivistarparadís okkar Eyfirðinga og Skógræktarfélag Eyfirðinga hefur unnið þrekvirki með því að gera skóginn aðgengilegan almenningi allan ársins hring. Snjótroðarinn er einmitt stór liður í því að gera þessa paradís enn aðgengilegi yfir vetrartímann og þess vegna er svo ánægjulegt að taka þátt í þessu verkefni,“ segir Dagný Linda Kristjánsdóttir stjórnarkona í Samherja.