Samherji krefst afsökunarbeiðni og leiðréttingar á meiðandi frétt

Samherji hefur sent erindi til stjórnar Ríkisútvarpsins og útvarpsstjóra vegna fréttar sem var flutt í síðari sjónvarpsfréttatíma RÚV fimmtudaginn 13. febrúar síðastliðinn. Í erindinu krefst Samherji afsökunarbeiðni og leiðréttingar á meiðandi fréttaflutningi.

Í umræddri frétt, sem fjallaði um þróunaraðstoð, var fullyrt að Samherja hefði tekist að afla sér kvóta í Namibíu með því að múta embættismönnum og að heimamenn hafi því ekki notið þeirrar þróunaraðstoðar sem Íslendingar hefðu veitt þeim á árum áður. Í erindi Samherja kemur fram að fullyrðing í fréttinni eigi sér enga stoð í raunveruleikanum og sé úr lausu lofti gripin. Koma hefði mátt í veg fyrir þetta ef Samherja hefði verið gefinn kostur á andsvörum áður en fréttin var flutt, eins og vinnureglur fréttastofu Ríkisútvarpsins geri áskilnað um. Ekki hafi verið haft samband við Samherja við vinnslu fréttarinnar þótt skýrt sé kveðið á um í áðurnefndum vinnureglum að þegar um sé að ræða alvarlegar ásakanir, eins og lögbrot, verði að gefa viðkomandi „möguleika til andsvara í sama fréttatíma eða geta þess að frásagnar af hans sjónarmiðum sé að vænta, náist ekki í viðkomandi.“

Í erindinu gerir Samherji jafnframt alvarlegar athugasemdir við framsetningu fréttarinnar. Þar var viðtal við erlendan viðmælanda um spillingu en látið líta út fyrir að umræðuefnið væri mál Samherja. Viðmælandinn minntist þó ekki einu orði á fyrirtækið eða starfsemi þess. Á meðan voru sýndar myndir af stjórnendum Samherja. Alvarlegast sé þó að í fréttinni hafi verið fullyrt að stjórnendur Samherja hafi gerst sekir um alvarlega refsiverða háttsemi með því að múta embættismönnum í Namibíu en þeir hafi hvorki verið sakfelldir né ákærðir fyrir slíka háttsemi. Þá sé enginn starfsmaður Samherja með réttarstöðu sakbornings vegna málsins. 

Er þess óskað að Ríkisútvarpið leiðrétti meiðandi ummæli í fréttinni 13. febrúar og biðjist afsökunar. Þá áskilur Samherji sér rétt til að höfða mál vegna þessara ummæla og annarra.

Nálgast má bréf Samherja í viðhengi hér fyrir neðan.

Bréf til RÚV 16_02_2020