Samherji undirbýr að skip félagsins noti kolefnislaust eldsneyti

Systurskipin Björg EA 7 , Kaldbakur EA 1 og Björgúlfur EA 312
Systurskipin Björg EA 7 , Kaldbakur EA 1 og Björgúlfur EA 312

Orkusjóður hefur ákveðið að styrkja verkefni Samherja sem felst í því að hanna lausn og breyta ísfisktogara félagsins þannig að skipið geti nýtt grænt rafeldsneyti. Með slíkri breytingu dregur verulega úr kolefnislosun. Áætlaður kostnaður er hátt í tveir milljarðar króna og er stuðningur Orkusjóðs til þessa verkefnis 100 milljónir króna.

Styrkir Orkusjóðs eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum. Áhersla er lögð vistvæna orkunýtingu sem og að styðja við orkuskipti um land allt.

Stórt skref í átt að settum markmiðum í loftslagsmálum

Hjörvar Kristjánsson skipaverkfræðingur útgerðar hjá Samherja segir að mikil þekking sé innan félagsins á þessu sviði, auk þess standi yfir viðræður við ýmsa samstarfsaðila.

„Þetta er viðamikið verkefni. Í fyrsta lagi viljum við sem ábyrgur aðili leggja okkar að mörkum að Ísland taki stór skref í átt að settum markmiðum í loftslagsmálum. Sömuleiðis viljum við stuðla að því að innlend fyrirtæki öðlist þekkingu á þeirri tækni sem þarf til að keyra skip á kolefnisfríu eldsneyti og vinnum því náið með leiðandi fyrirtækjum á þessu sviði. Þær áætlanir sem við erum að vinna með núna, gera ráð fyrir að breyta skipi þannig að hægt verði að draga úr losun koldíoxíðs um 75% eða sem samsvarar þrjú þúsund tonnum á ári. Við erum þegar í viðræðum við ýmis fyrirtæki í tengslum við þetta verkefni, auk þess sem mikil þekking er innan Samherja, sem hvortveggja gerir okkur kleift að vinna alla þætti með ákveðnum og hnitmiðum hætti. Allt er þetta kostnaðarsamt og eins og fyrr segir gera okkar áætlanir ráð fyrir því að kostnaðurinn við breytingar á einu skipi nálgist tvo milljarða króna.“

Íslenskur sjávarútvegur í fararbroddi

„Við höfum alla burði til að vera í forystu á heimsvísu vegna framlags til umhverfismála. Íslenskur sjávarútvegur er í fararbroddi á mörgum sviðum og við hjá Samherja erum vel í stakk búin til að hefja fyrir alvöru undirbúning að því að keyra skipin á kolefnisfríu eldsneyti. Þessi styrkur Orkusjóðs er ánægjuleg staðfesting á því að við erum á réttri braut,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.