„Skipin eru eins og ný“

Björgúlfur EA 312 í flotkví Slippsins / myndir samherji.is
Björgúlfur EA 312 í flotkví Slippsins / myndir samherji.is

Systurskipin Björgúlfur EA 312 og Björg EA 7 hafa verið máluð, auk þess sem unnið var að ýmsum endurbótum hjá Slippnum Akureyri.

Björgúlfur og Björg eru tvö af fjórum systurskipum sem smíðuð voru hjá Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Björgúlfur kom nýr til Akureyrar í júní 2017 og Björg í lok október sama ár. Hin skipin eru Kaldbakur EA 1 og Drangey SK 2. Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja segir að tími hafi verið kominn á hreinsun skrokka skipanna.

Nauðsynlegt að þvo og mála reglulega

„Þegar skipin voru byggð var vandað til allra verka og málningin hefur því enst mjög vel, aðeins hefur þurft að lagfæra skemmdir sem alltaf verða á skrokkum skipa. Núna létum við sem sagt háþrýstiþvo skrokka skipanna og mála. Þetta er nauðsynlegt að gera reglulega, fjarlægja gróður og þvo allt salt í burtu áður en málað er. Síðast en ekki síst stuðlar góð og markviss hreinsun að betri orkunýtingu og sparnaði í olíunotkun, þannig að hvatarnir eru margir í þessum efnum.“

Sumarleyfi og skertar veiðiheimildir

Kristján segir að auk þess hafi verið unnið að ýmsum lagfæringum um borð.

„Það eru margir slitfletir um borð í fiskiskipum sem stöðugt þarf að fylgjast með og lagfæra. Stýrisbúnaður var meðal annars yfirfarinn og uppfærður í öðru skipanna, svo ég nefni sem dæmi. Þessi systurskip hafa reynst afskaplega vel en auðvitað þarf stöðugt að endurnýja ýmsa hluti, það er bara hefðbundið og sjálfsagt viðhald. Í tengslum við sumarleyfi starfsfólks vinnsluhúsanna á Dalvík og Akureyri er sjósóknin ekki eins stíf og tími gefst því til viðhalds og endurbóta. Skertar veiðiheimildir hafa líka sitt að segja í þessum efnum en nýtt fiskveiðiár hefst þann 1. september.“

Skipin vinsælt myndefni

„Við erum afskaplega ánægð með vinnu Slippsins, skipin eru eins og ný, auk þess sem allar tímaáætlanir stóðust. Innan raða Slippsins er mikil þekking og reynsla í háþrýstiþvotti og málningu enda eru þessir þættir mikilvægir í viðhaldi skipa. Ég held að áhugafólk um skip taki yfirleitt eftir nýmáluðum skipum, mér sýnist að minnsta kosti margir taki myndir af systurskipunum eftir að þau voru máluð svona vel og það er bara skemmtilegt,“ segir Kristján Vilhelmsson.