Strákarnir á Harðbak EA í jólaskapi á miðunum

Frá vinstri: Guðmundur I. Guðmundsson, Elmar Guðmundsson, Lýður Jóhannesson, Þorbergur Viktorsson. /…
Frá vinstri: Guðmundur I. Guðmundsson, Elmar Guðmundsson, Lýður Jóhannesson, Þorbergur Viktorsson. /

Borðin svignuðu undan kræsingum í Harðbak EA 3, togara ÚA um síðustu helgi. Kristinn kokkur hafði undirbúið innkaup aðfanga vel og vandlega fyrir túrinn  eins og venjulega, að þessu sinni þurfti þó að gera ráð fyrir veglegum litlu jólunum um borð eins og vera ber á sjálfri aðventunni.

Sérstakur jólamatseðill var útbúinn, rétt eins og á góðum veitingahúsum og undirstrikað var að ætlast væri til snyrtilegs klæðnaðar við borðhaldið, enda hátíð um borð.

Ekki var gert hlé á veiðum, efnt var til spurningaleikja á milli vakta og vegleg verðlaun auðvitað í boði. 

Heimasíðan fékk sendar nokkrar myndir frá litlu jólunum, sem segja meira en mörg orð og við látum þær þess vegna tala sínu máli.