Góð afkoma hjá Samherja Holding ehf. endurspeglar traustan undirliggjandi rekstur

Togarinn Cuxhaven
Togarinn Cuxhaven

Samherji Holding ehf. hagnaðist um 53,7 milljónir evra á árinu 2021 samkvæmt ársreikningi sem samþykktur var á aðalfundi félagsins í gær. Þetta er talsvert betri afkoma en árið 2020 þegar félagið hagnaðist um 27,4 milljónir evra.

Tekjur samstæðu Samherja Holding ehf. af seldum vörum námu 327,7 milljónum evra á árinu 2021 samkvæmt rekstrarreikningi. Er þetta aukning frá fyrra ári þegar þær námu 309 milljónum evra. Eignir samstæðunnar voru 645,2 milljónir evra í lok árs 2021 og eigið fé nam 439 milljónum evra. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 68% í árslok.

Helstu eignir Samherja Holding ehf. eru fyrirtæki á sviði veiða, vinnslu og sölu sjávarafurða í Evrópu og Norður-Ameríku en mikill meirihluti eigna félagsins er erlendis. Þá hefur Samherji Holding ehf. einnig fjárfest í flutningastarfsemi og er stærsti hluthafinn í Eimskip hf.

Ársreikningur Samherja Holding ehf. var endurskoðaður og áritaður án fyrirvara. Á áðurnefndum aðalfundi Samherja Holding ehf. fór fram stjórnarkjör í félaginu og voru Eiríkur S. Jóhannsson, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Kristján Vilhelmsson, Óskar Magnússon og Þorsteinn Már Baldvinsson kjörin í stjórn. Er stjórn félagsins því óbreytt frá síðasta aðalfundi.

Öflugt starfsfólk sýndi sveigjanleika

„Á árinu 2021 voru fyrirtæki í samstæðu Samherja Holding ehf. enn að glíma við áskoranir vegna heimsfaraldursins sem kölluðu á tímabundnar breytingar á daglegri starfsemi, líkt og árið á undan. Þurftu menn að leggja mikið á sig vegna sóttvarnar- og ferðatakmarkana og er ástæða til nefna sérstaklega áhafnir skipa í því samhengi. Starfsfólkinu tókst hins vegar að aðlaga sig hratt og vel að þessum breytingum, eins og uppgjörið sýnir. Það má því fullyrða að góð afkoma sé fyrst og fremst öflugu starfsfólki að þakka. Uppgjörið sýnir traustan rekstur hjá Samherja Holding ehf., sem er ánægjulegt. Efnahags- og lausafjárstaðan er sterk og fjármögnun er tryggð til langs tíma,” segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja Holding ehf.

Hér fyrir neðan má nálgast lykiltölur úr rekstri Samherja Holding ehf