Hólmadrangur tekur þátt í frumkvöðlaverkefni á Vestfjörðum

Rækjuvinnslan Hólmadrangur ehf., dótturfélag Samherja, er þátttakandi í nýsköpunarsamkeppninni „Hafsjór af hugmyndum“ á vegum Sjávarklasa Vestfjarða og Vestfjarðastofu.

Um er að ræða keppni í nýsköpun á sviði sjávarútvegs en markmið keppninnar er að hvetja starfandi fyrirtæki, frumkvöðla og nemendur til nýsköpunar, skapa ný störf í sjávarútvegi á Vestfjörðum, auka verðmætasköpun í ólíkum greinum sjávarútvegs og bæta nýtingu hráefnis.

Rækjuiðnaðurinn er hátækniiðnaður og Hólmadrangur er tæknilega fullkomin rækjuvinnsla á Hólmavík. Hún hefur verið rekin á sama stað í áratugi og flestir starfsmanna hafa langan starfsaldur. Hólmadrangur er einn af stærstu atvinnurekendunum á Ströndum og gegnir því mikilvægu hlutverki í samfélaginu þar.

Sigurbjorn_Ulfarsson_HolmadrangiStjórnendur Hólmadrangs telja að frumkvöðlastarf sé lykillinn að aukinni verðmætasköpun í rækjuvinnslu, rétt eins og öðrum greinum sjávarútvegs. Þeir líta á verkefnið sem ákveðið stefnumót við framtíðina og binda vonir við að það leysi úr læðingi sköpunarkraft sem muni ýta undir nýja verðmætasköpun á sviði rækjuvinnslu.

„Frumkvöðlastarf er mjög mikilvægt þegar það miðar að því að efla nýja atvinnuhætti, auka hagkvæmni og finna leiðir til betri orkunýtingar, svo eitthvað sé nefnt. Við erum að búa í haginn með frumkvöðlastarfi,“ segir Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, rekstrarstjóri Hólmadrangs.

 

Á vefsíðu Hafsjóar af hugmyndum á vef Vestfjarðarstofu  og á Facebook-síðu Vestfjarðarstofu má nálgast frekari upplýsingar um keppnina. Hér er svo hlekkur á kynningarmyndband Hólmadrangs vegna verkefnisins.

Holmadrangur