Loðnuvertíðin komin á fullt

Vilhelm Þorsteinsson EA 11 að veiðum í blíðskaparverði í dag / mynd Hjörtur Valsson.
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 að veiðum í blíðskaparverði í dag / mynd Hjörtur Valsson.

Loðnuvertíðin er hafin af fullum krafti og hafa skipin fengið ágætis afla í flestum köstum.

Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, er í sinni annarri veiðiferð á yfirstandandi vertíð. Skipið er þegar þetta er skrifað að veiðum suð-austur af Vík í Mýrdal.

Loðnan gengur býsna hratt vestur með suðausturströndinni.

Hrognafyllingin er núna á bilinu 16 – 18 % , sem þýðir að frysting fyrir Japansmarkað er rétt að hefjast.

Um átján klukkustunda sigling er af miðunum til Eskifjarðar, þar sem Vilhelm Þorsteinsson landar aflanum til vinnslu.

Heildaraflamark í loðnu er rúmlega 197 þúsund tonn, þar af koma rúmlega 150 þúsund tonn í hlut Íslendinga.

Samtök sjávarútvegsfyrirtækja áætla að vertíðin skili 22 – 25 milljörðum króna í útflutningsvermætum, sem séu mikilvægar fyrir þjóðarbúið.