Margrét EA-710 landar sínum verðmætasta farmi til þessa úr einni veiðiferð.
31.05.2000
Það var ærin ástæða fyrir áhöfn Margrétar EA-710 að fagna 31. mai s.l. þegar siglt var til heimahafnar á Akureyri úr fimmtu veiðiferð ársins. Í frystigeymslum skipsins var verðmætasti farmur sem skipið hefur aflað í einni veiðiferð frá því að skipið hóf veiðar undir merkjum Samherja. Afli upp úr sjó var 494 tonn aðalega grálúða veidd út af vestfjörðum. Aflaverðmæti var um 111.6 millj. króna. Veiðiferðin tók 24 daga og reyndist hásetahluturinn vera 1.317.038 kr.
Af þessu tilefni sigldu forstjóri Samherja og framkvæmdastjóri útgerðasviðs til móts við skipið er það lónaði inn Eyjafjörðinn og samfögnuðu áhöfninni. Skipstjóri í þessari veiðiferð var Sigtryggur Gíslason. *
ea710-1s.jpg (4248 bytes)
Sigtryggur skipstjóri einbeittur á svip á innstíminu.
ea710-2s.jpg (4875 bytes)
Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri og Kristján Vilhelmsson framkvæmdastjóri útgerðasviðs á leið út í Margréti að fagna þessum áfanga með áhöfninni.