Nýr aðstoðarframkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood

Hlynur Veigarsson
Hlynur Veigarsson

 

Hlynur Veigarsson hefur tekið við nýju starfi sem aðstoðarframkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood. Hlynur mun gegna starfi framkvæmdastjóra í fjarveru Gústafs Baldvinssonar sem áætlað er að snúi aftur til starfa í apríl næstkomandi. Eftir það mun Hlynur gegna starfi aðstoðarframkvæmdastjóra við hlið Gústafs.

Hlynur hefur starfað hjá Samherja frá árinu 1992 þegar hann var til sjós á ýmsum frystitogurum Samherja á sumrin, meðfram námi. Hlynur kom fyrst inn í söludeild Samherja á árinu 2002 sem sölustjóri eldisafurða og annaðist hann síðar sölu á sjófrystum afurðum inn á Asíumarkað.

Hynur er með meistaragráðu í matvæla- og rekstrarfræði frá Háskóla Íslands. Hann er kvæntur Þórhöllu Andrésdóttur og eiga þau saman fjögur börn.