Nýtt hátæknivinnsluhús Samherja á Dalvík tekið í notkun

Vinnsla hófst í morgun í nýju hátæknivinnsluhúsi Samherja á Dalvík. Það er óhætt að fullyrða að um sé að ræða eitt fullkomnasta vinnsluhús í heiminum í bolfiskvinnslu. Er vinnsluhúsið raunar það eina sinnar tegundar vegna þeirrar tækni og þess búnaðar sem er í því.

Framkvæmdir og þróun á búnaði í húsinu, sem er 9.000 fermetrar, hafa staðið yfir undanfarin fjögur ár. Um er að ræða meiriháttar fjárfestingu sem mun skipta miklu máli fyrir samfélagið á Dalvík og sjávarútveginn á Íslandi almennt. Heildarfjárfesting nemur um sex milljörðum króna og er um helmingur fjárfestingarinnar vegna tækja og hugbúnaðar.

Í húsinu eru vinnslulínur frá Völku, flökunarvélar frá Vélfagi, hausarar frá Baader Ísland, lausfrystar frá Frost, stöflunarróbótar og róbót sem losar kör frá Samey. Að auki er búnaður frá Skaganum 3X, Marel, Raftákn, Slippnum og fleiri íslenskum fyrirtækjum.

Tækin í húsinu og hugbúnaðurinn sem stýrir þeim er afrakstur þróunarsamstarfs Samherja og fyrirtækjanna sem framleiddu þau. Í reynd er um að ræða nýjar, sérhæfðar lausnir sem byggja á nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Stjórnendur Völku og annarra sem þróuðu tækin í húsinu, binda vonir við að húsið muni nýtast við markaðssetningu á tækjunum, ekki síst erlendis.  Munu erlendir gestir heimsækja húsið á næstu mánuðum og árum til að skoða tækin með hugsanleg kaup í huga frá þessum íslensku hátæknifyrirtækjum.

Thorsteinn_Mar_Baldvinsson_DalvikÞorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sýndi fulltrúum áðurnefndra fyrirtækja húsið í gær að viðstöddum sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar, fréttamönnum og öðrum gestum.

„Vinnslubúnaðurinn í þessu húsi er svo til allur nýr. Hönnun og útfærsla á mörgum þáttum starfseminnar eru einnig ný af nálinni. Í þessu húsi erum við að gera eitthvað sem aldrei hefur verið gert áður enda göngum við lengra í sjálfvirknivæðingu, sem miðar meðal annars að því að létta störf starfsfólks, í nýja húsinu en þekkst hefur í fiskvinnslu. Við hönnun hússins var horft sérstaklega til þess að gera allan aðbúnað starfsfólks eins og best verður á kosið. Í því sambandi má nefna lýsingu og hljóðvist sem er sérstaklega hönnuð með það fyrir augum að auka þægindi. Við lítum á daginn í dag sem hátíðardag fyrir íslenskan sjávarútveg og íslenskan iðnað", segir Þorsteinn Már.

Eins og áður segir hófst vinnsla í húsinu í morgun. Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, segir að hún hafi farið vel af stað. „Þetta gekk betur en maður þorði að vona enda er alltaf krefjandi að taka nýjan búnað í notkun. Það mun taka tíma að þjálfa starfsfólkið sem er að læra á nýja tækni en við erum bjartsýn á að það gangi vel. Hér eru allir á tánum,“ segir Gestur.

Samherji_Dalvik_fyrsta_londun

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

 

 Hér fyrir neðan eru myndir frá 8.júní sl. er starfsmönnum landvinnslu var boðið í grillveislu og að skoða húsið 

 Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Dalvik_nytt_hus

Hér fyrir neðan eru myndir frá síðasta vinnudegi í gamla húsinu - hinn góði vinnuandi var gripinn í kassa og formlega fluttur yfir í nýja húsið

Dalvik_gamla_husid

Dalvik_gamla_husid

 

Dalvik_gamla_husid

Samherji_Dalvik

Samherji_Dalvik

Samherji_Dalvik

Samherji_Dalvik

Samherji_Dalvik

Samherji_Dalvik

Samherji_Dalvik