Öll Skip Samherja í höfn og komin í jólabúning

Björgúlfur EA 312 við bryggju á Dalvík / myndir: samherji.is, Axel Þórhallsson og Elfar Logason.
Björgúlfur EA 312 við bryggju á Dalvík / myndir: samherji.is, Axel Þórhallsson og Elfar Logason.

Öll skip Samherja eru komin í land og áhafnirnar komnar í jólaleyfi.

Flest skipin liggja við bryggju á Dalvík en einnig á Akureyri og í Hafnarfirði. Eins og meðfylgjandi myndir sýna eru öll skipin vel skreytt í tilefni jólanna. Myndirnar voru teknar um helgina.

Síðasta skipið í land var Kaldbakur EA, sem landaði á Dalvík í gær.

Ísfisktogarar félagsins fara svo í stutta túra milli jóla- og nýárs til að sjá vinnslum félagsins á Dalvík og Akureyri fyrir hráefni í byrjun nýs árs.