Pólskt matar- og skemmtikvöld á Dalvík

Um fjörutíu starfsmenn Samherja á Dalvík rekja uppruna sinn til Póllands / myndir: samherji.is
Um fjörutíu starfsmenn Samherja á Dalvík rekja uppruna sinn til Póllands / myndir: samherji.is

Starfsmannafélagið Fjörfiskur, sem er félag starfsfólks Samherja á Dalvík, efndi sl. laugardag til pólsks matar- og skemmtikvölds, en um fjörutíu starfsmenn Samherja á Dalvík rekja uppruna sinn til Póllands. Sambærileg þjóðarkvöld eru haldin árlega og njóta vinsælda. Í fyrra sáu filippseyskir starfsmenn um kvöldið og nú var röðin komin að Pólverjum.

Skemmtilegt að kynna mat og menningu heimalandsins

Renata Bendera hafði yfirumsjón með undirbúningnum og sá til þess að allir þættir kvöldsins væru sem best skipulagðir. Hún var yfirkokkur kvöldsins. Patrycja Kozlowska hefur búið á Íslandi í um tíu ár, alla tíð á Dalvík og líkar vel. Hún var kynnir kvöldsins og jafnframt í undirbúningsnefnd pólska matar- og skemmtikvöldsins.

„ Svona kvöld kallar eðlilega á töluverða vinnu. Við erum nokkuð mörg og hjálpuðumst að, auk þess sem aðstaða í eldhúsinu og matsalnum er frábær.

Í aðalrétt voru pólskir réttir sem okkur fannst tilvalið að kynna fyrir gestum og sömu sögu er að segja um eftirréttina. Það er talsverður munur á íslenskum og pólskum mat og þess vegna er skemmtilegt að fá tækifæri til að kynna matarmenningu okkar heimalands. Við skreyttum líka salinn og sýndum myndbönd með tónlist og þjóðlegum fróðleik.“

Hvernig gekk að útvega hráefni í alla réttina ?

„Mörg okkar kaupa ýmislegt heima í Póllandi sem ekki fæst hérna á Íslandi. Og svo eru líka pólskar búðir í Reykjavík, þannig að aðgengi að hráefni hefur batnað með árunum. Í pólskri matargerð er gjarnan lögð áhersla á kjöt, svo sem svínakjöt, nautakjöt og kjúkling, þetta er reyndar mismunandi eftir svæðum. Pólverjar leggja almennt mikið upp úr matargerð, sérstaklega þegar röðin kemur að hátíðarréttum.“

Pólverjar fjölmennir á Íslandi

Pólverjar búsettir á Íslandi eru hátt í 30 þúsund. Íbúar Póllands eru um 38 milljónir og landið er það níunda stærsta í Evrópu. Samvinna landanna hefur aukist á undanförnum árum, svo sem á sviði menningarmála.

Hvað vita Íslendingar um Pólland ?

„ Ég býst við að þekkingin hafi aukist á undanförnum árum samhliða bættum samgöngum og svo búa margir Pólverjar á Íslandi, sem segja frá landinu sínu. Þeir Íslendingar sem heimsækja Pólland fara líklega flestir til höfuðborgarinnar og nálægra svæða en síður út á landsbyggðina. Þetta matar- og skemmtikvöld verður vonandi til þess að gestirnir kynni sér Pólland enn betur, ég vona það. Síðan má ekki gleyma því að árshátíðir Samherja hafa verið haldnar í Póllandi, sem mér þykir afskaplega vænt um,“ segir Patrycja Kozlowska.

Þjóðarkvöldin þjappa starfsfólkinu enn betur saman

Ragnheiður Rut Friðgeirsdóttir formaður starfsmannafélagsins Fjörfisks segir að þjóðarkvöldin hafi fest sig í sessi og njóti alltaf vinsælda.

„Svona kvöld þjappa okkur enn betur saman. Pólsku starfsmennirnir stóðu sig frábærlega og það var gaman að fylgjast með undirbúningnum. Ég held að allir hafi skemmt sér konunglega og vonandi kynnst landinu betur. Félagslífið hjá okkur er blómlegt og þessi þjóðarkvöld eru ómissandi í starfseminni.“

Meðfylgjandi eru myndir frá matar- og skemmtikvöldinu.