Samherji hf. tekur formlega við rekstri Útgerðafélags Akureyringa

Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson taka á móti Baldvin NC við bryggju ÚA
Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson taka á móti Baldvin NC við bryggju ÚA

Togarinn Baldvin NC 100 kom til Akureyrar í gærkvöld með fyrsta aflann til vinnslu í fiskiðjuveri Útgerðafélags Akureyringa og vinnsla hófst í morgun. Þar með má segja að starfsemi ÚA sé formlega hafin á vegum nýrra eigenda.

Í byrjun maí var gengið frá samningi milli  Brims og Samherja  um kaup á eignum Brims á Akureyri. Samningurinn var gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, sem síðan samþykkti kaupin í lok júlí. Um er að ræða fiskvinnslu á Akureyri og Laugum, ísfisktogarana  Sólbak EA 1 og Mars RE 205 og veiðiheimildir samtals 5.900 þorskígildistonn.  Hjá ÚA á  Akureyri og á Laugum starfa samtals um 150 manns. Í vinnslunni á Akureyri fer fram tæknivædd bolfiskvinnsla þar sem unnar eru ferskar og frystar afurðir fyrir neytendamarkað, aðallega í Evrópu. Á Laugum er starfrækt fiskþurrkun.

Baldvin NC kom með fullfermi af þorski sem veiddur var við Austurströnd Grænlands. Skipið er gert út frá Cuxhaven af Deutsche Fischfang Union (DFFU) sem er dótturfélag Samherja. Skipstjóri er Sigurður Kristjánsson. „Þetta er stór og góður þorskur, meðalviktin er yfir þrjú kíló eftir aðgerð. Áhöfnin á Baldvin NC er sannarlega ánægð og stolt af því að koma með fyrsta farminn til vinnslu hjá ÚA," sagði Sigurður Kristjánsson skipstjóri.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja:  „Hjá Samherja starfar öflugur og samheldinn hópur og sömu sögu má segja um starfsmenn ÚA. Við erum því bjartsýn um að samstarfið í þessum stækkandi hóp samstarfsmanna verði farsælt. Okkur stjórnendum Samherja er ljóst hve stóran sess ÚA skipar í hugum heimamanna. Við gerum okkur grein fyrir ábyrgðinni sem fylgir því að taka yfir þennan rekstur og munum leggja okkur fram um að hann gangi sem best í framtíðinni.‘‘ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.