Samherji mun innleiða nýtt stjórnunar- og regluvörslukerfi

Samherji hefur gripið til ráðstafana til að innleiða nýtt stjórnunar- og regluvörslukerfi. Ákvörðun um innleiðingu kerfisins var tekin á grundvelli reynslu af starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Nýja kerfið verður hluti af framtíðarstjórnun Samherja samstæðunnar og mun ná til Samherja og allra dótturfyrirtækja.

„Samherji mun þróa og innleiða heildrænt stjórnunar- og regluvörslukerfi sem byggist á áhættuskipulagi fyrirtækisins, meðal annars með áherslu á spillingu, efnahagslegar refsiaðgerðir og peningaþvætti,“ segir Björgólfur Jóhannsson starfandi forstjóri Samherja. Stefnt er að því að ljúka innleiðingu kerfisins síðar á þessu ári.

„Þetta kerfi mun gegna lykilhlutverki í nýrri áætlun þar sem við munum krefjast þess að allir starfsmenn taki virkan þátt í ferli til að endurmeta gildi okkar, menningu og starfsvenjur. Við munum síðan innleiða verkferla fyrir áhættumat og siðareglur í samræmi við kerfið.“

Björgólfur segir að þrátt fyrir alvarlegar ásakanir á hendur félaginu í fjölmiðlum hafi tekist að verja öll sambönd við viðskiptavini og samstarfsaðila þess, bæði hér innanlands og erlendis. Samherji hafi náð að þjónusta alla viðskiptavini sína með sama hætti og félagið hafi gert í gegnum tíðina. „Starfsmenn okkar hafa, eins og alltaf, unnið frábært starf til að ganga úr skugga um við afhendum afurðir í hæsta gæðaflokki hér heima og á hinum alþjóðlega markaði,“ segir Björgólfur.

Samherji er um þessar mundir að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það að markmiði að hætta alfarið rekstri í landinu. Hins vegar er ljóst að það mun taka einhvern tíma. Allar ákvarðanir vegna starfseminnar í Namibíu verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórnvöld og í samræmi við gildandi lög og reglur.