Samherji fjárfestir í Rem Offshore í Noregi

Dótturfélag Samherja hf. Kaldbakur ehf. hefur keypt 2.444.446 hluti í Rem Offshore ASA í Noregi á genginu 53,50 og á eftir kaupin 6,24 % af heildarhlutafé félagsins. Jafnframt hefur verið gert hluthafasamkomulag milli fimm hluthafa sem eiga 50,51% eignarhlut um að koma fram sameiginlega á aðal- og hluthafafundum félagsins. Í samkomulaginu er einnig forkaupsréttarákvæði milli þessara aðila í. Þetta hefur verið tilkynnt til Norsku Kauphallarinnar.Rem Offshore er útgerðarfyrirtæki sem þjónar olíu-, byggingar- og rannsóknariðnaði á sjó. Félagið gerir út 7 stór skip en 12 skip til viðbótar eru í smíðum, til afhendingar á næstu 3 árum. Floti Rem er sá nýjasti og fullkomnasti á þessu sviði í heiminum. Þjónustusvæði skipanna er aðallega á Norðursjó en einnig undan ströndum Mexíkó, Indlandi og Brasilíu. Rekstri félagsins er stýrt frá höfuðstöðvunum í Fosnavåg í Noregi og eru starfsmenn um 300. Starfsemin hefur vaxið ört á undanförnum misserum og er velta Rem Offshore á árinu 2007 áætluð um 420m NOK í samanburði við 189m NOK á árinu 2006. Félagið var skráð á hlutabréfamarkað í Noregi í mars s.l. (REM NO)

Með þessum kaupum er Samherji að fara á nýjar slóðir í útgerð. ”Rem Offshore er spennandi fyrirtæki, með framsækna og skarpa framtíðarsýn og við álítum möguleikana góða fyrir þennan rekstur. Þekking starfsmanna Samherja mun nýtast en einnig fáum við tækifæri til að öðlast nýja þekkingu í útgerð skipa. Það er mitt mat að þessi fjárfesting styrki Samherja til framtíðar bæði þekkingar- og rekstrarlega”, segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja hf.

Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Már Baldvinsson í síma 460 9000

H
eimasíða REM Offshore ASA er www.remoffshore.no og hér fyrir neðan má líta hluta af skipum Rem Offshore
rem_supplier_400

PSV (Platform Supply Vessels):

Rem Fortune
Rem Supplyer

Rem Provider
Rem Server
Rem Spirit
Rem Supporter
Rem TBN


Lengd 73,60 m
Breidd 16,00 m
Dýpt 5,80 m
rem_commander_400MPSV (multipurpose PSV) vessels:

REM Commander
REM Fortress
REM Etive


Lengd 93,50 m
Breidd 19,70 m
Dýpt 6,24 m
rem_balder_400 AHTS (Anchor Handling Tug supply)vessels:

REM Balder
REM Odin
REM TBN


Lengd 78,30 m
Breidd 17,20 m
Dýpt 8,30 m