Á undanförnum misserum hafa verið gerðar umtalsverðar breytingar í Silfurstjörnunni, landeldisstöð Samherja fiskeldis að Núpsmýri í Öxarfirði.
Framkvæmdum er nú lokið og af því tilefni er áhugasömum boðið að kynna sér vinnsluna næstkomandi föstudag 5.september.
Tæknilega vel búin
„Verklegar framkvæmdir við stækkun Silfurstjörnunnar hófust í byrjun 2022 og hefur stöðin nú verið stækkuð um nær helming. Silfurstjarnan gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi svæðisins, enda um að ræða stærsta vinnustaðinn fyrir utan sjálft sveitarfélagið. Eftir þessar breytingar telst Silfurstjarnan tæknilega mjög vel búin á allan hátt og það verður ánægjulegt að kynna vinnsluna á föstudaginn. Við vonumst því til að sjá sem flesta,“ segir Elvar Steinn Traustason rekstrarstjóri Silfurstjörnunnar.
Fræðsla og veitingar
Dagskráin hefst klukkan 14:30 með kynningu Jóns Kjartans Jónssonar framkvæmdastjóra Samherja fiskeldis. Vinnsluhúsið opnar klukkan 14:00.
Þar á eftir verða gestir fræddir um starfsemina.
Léttar veitingar verða á boðstólum og sælkeraréttir úr afurðum landvinnslunnar frá veitingahúsinu RUB23.
Allir eru hjartanlega velkomnir !