Sjómenn Samherja og ÚA taka þátt í rannsókn á einkennum sjóveiki

Fyrsti sjómaðurinn til að taka þátt í verkefninu á Akureyri var Karl Helgason á Björgu EA / myndir s…
Fyrsti sjómaðurinn til að taka þátt í verkefninu á Akureyri var Karl Helgason á Björgu EA / myndir samherji.is

Sjómenn á togurum Samherja og Útgerðarfélags Akureyringa taka þátt í viðamikilli rannsókn Hreyfivísindaseturs Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands á einkennum hreyfiveiki.

Fullkominn hátæknibúnaður til rannsókna á sjóveiki og annarri hreyfiveiki var fluttur til Akureyrar í tengslum við þátttöku sjómannanna.
Með sýndarveruleikatækni framkallar búnaðurinn hreyfingar sem eru svo raunverulegar að þátttakendur finna fyrir hreyfiveiki, eins og sjó- eða bílveiki.

Beint af sjónum í hátæknibúnaðinn


“Í dag hafa um fjögur hundruð einstaklingar tekið þátt í rannsókninni, fólk sem hefur verið í landi í langan tíma. Hérna á Akureyri fáum við hins vegar sjómenn sem eru að koma úr veiðiferð, hafa sem sagt verið á sjó í töluverðan tíma. Togarinn Björg EA kom til löndunar snemma í morgun og sjómennirnir voru svo vinsamlegir að taka þátt í rannsókninni á meðan öll kerfin í líkamanum eru í raun enn stillt inn á veruna á sjónum. Síðan bætast við fleiri áhafnir á næstu dögum, ” segir Hannes Petersen prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.

Sjálfsagt að taka þátt

Karl Helgason háseti á Björgu EA var fyrstur til að taka þátt í rannsókninni á Akureyri.


„Nei, það er varla hægt að tala um að ég verði sjóveikur en í verstu veðrum finn ég þó fyrir smá velgju. Það er sjálfsagt að taka þátt í þessari rannsókn og vonandi verður í framtíðinni hægt að draga úr einkennum sjóveiki. Ég held að sjómenn tali ekki mikið um sjóveiki, ég er ekki frá því að þetta sé svolítið feimnismál innan stéttarinnar. Þessi búnaður er hreint magnaður, sýndarveruleikatæknin er mjög raunveruleg,“ segir Karl Helgason.

Aukin þekking á sjóveiki

„Aðkoma Samherja og sjómannanna er gríðarlega mikilvæg fyrir verkefnið og við erum þakklát fyrir stuðninginn og þátttöku þeirra. Engar sambærilegar rannsóknir hafa áður verið gerðar hér á landi, niðurstöður rannsóknarinnar koma til með að auka þekkingu okkar á hreyfiveiki og þar með talið sjóveiki,“ segir Hans Petersen prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.

Nánar um markmið rannsóknarinnar:

- Þróa nýja aðferð til að mæla og meta breytingar á líffræðilegum merkjum sem tengjast hreyfiveiki og sérstaklega sjóveiki.
- Meta samspil á milli mismunandi líffræðilegra merkja með því að nota gervigreind og vélanám ( e. machine learning)
- Auka skilning á orsökum sjóveiki og þróa aðferðir til að þjálfa (meðhöndla) einstaklinga og draga úr einkennum á sjóveiki.