Skjáveggjastýring sett upp í Margréti EA 710 á aðeins rúmum þremur vikum

Hjörtur Valsson skipstjóri í brúnni á Margréti EA/myndir samherji.is
Hjörtur Valsson skipstjóri í brúnni á Margréti EA/myndir samherji.is

Brúin í uppsjávarskipi Samherja, Margréti EA 710 hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma. Svokölluð skjáveggjastýring hefur verið innleidd, sem gerir það að verkum að skipstjórinn getur stjórnað og fylgst með hvaða tæki sem er á stórum sjónvarpsskjáum. Hjörtur Valsson skipstjóri segir að ótrúlega vel hafi gengið að setja upp skjáveggjastýringuna.

Öllu stjórnað með einni mús í stað tíu

„Með þessu kerfi er hægt að draga yfir á skjáina öll þau tæki sem verið er að vinna með hverju sinni, hvort sem við erum á veiðum eða siglingu. Í gamla kerfinu vorum við með um tíu tölvumýs en núna er öllu stjórnað með einni mús, sem er mikill kostur. Myndirnar eru auk þess mun skýrari en á gömlu tækjunum, enda voru þau komin nokkuð til ára sinna. Allar skipanir í kerfinu eru því mun auðveldari og svo munar miklu að geta sett upp mismunandi sviðsmyndir og haft alla þætti svo að segja á sama staðnum. Allt þetta gerir vinnuaðstöðuna þægilegri og öruggari,“ segir Hjörtur.

Brettu upp ermarnar og kláruðu verkefnið á einum mánuði

Margrét EA 710 er fimmtán ára gamalt skip og segir Hjörtur að eðli málsins samkvæmt hafi verið kominn tími á uppfærslu, þótt eldri búnaðurinn hafi vissulega þjónað sínum tilgangi með miklum ágætum.

„Jú jú , við getum alveg hiklaust talað um byltingu í þessum efnum og uppsetningin gekk ótrúlega vel. Í byrjun desember leit út fyrir að skipið yrði í höfn í einhverjar vikur og þá var ákveðið að vaða í þetta verkefni og er skemmst frá því að segja að veggurinn var kominn upp rúmum þremur vikum síðar, sem er í raun ótrúlegt. Allir brettu upp ermarnar og létu verkin tala, að sjómanna sið. Við höfum farið í tvær veiðiferðir eftir að þetta nýja kerfi var sett upp og gaman að segja frá því að allt saman virkaði svo að segja hundrað prósent í fyrsta túrnum, það var í raun sáralítið sem þurfti að lagfæra. Þetta sýnir og sannar hversu vel við búum hérna á Akureyri varðandi slíka þjónustu.“

Leitað til sérhæfðra fyrirtækja á Akureyri

Kristinn Daníelsson hjá Samherja hafði yfirumsjón með verkefninu og leitað var til fyrirtækjanna ELAK, M-tech, N.Hansen, Pólýhúðunar og Trésmiðjunnar Ýmis. Öll eru þessi fyrirtæki á Akureyri og hafa tekið að sér margvísleg verkefni fyrir Samherja og tengd félög í áranna rás.

Ánægður með útkomuna

„Það er frekar flókið að setja upp svona kerfi og þá er auðvitað lykilatriði að hafa samhentan mannskap sem veit nákvæmlega hvað snýr upp og niður í þessum fræðum. Skjáveggjastýringin í Margréti EA er svipuð þeirri sem er í Vilhelm Þorsteinssyni EA 11, sem hefur reynst mjög vel og svona kerfi eru líklega í flestum nýrri skipum flotans. Ég er afskaplega ánægður útkomuna og hlakka til næstu veiðiferðar,“ segir Hjörtur Valsson skipstjóri á Margréti EA 710.“