„Spennandi að sjá nýsköpunar- og þróunarvinnu verða að veruleika“

Atli Dagsson tæknistjóri landvinnslu Samherja á skrifstofu sinni á Dalvík / myndir samherji.is
Atli Dagsson tæknistjóri landvinnslu Samherja á skrifstofu sinni á Dalvík / myndir samherji.is

Íslenskur sjávarútvegur hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, samhliða stöðugri þróun og innleiðingu tæknilausna á sviði vél- og rafeindabúnaðar.

Atli Dagsson tæknistjóri landvinnslu Samherja segir að innan félagsins sé rík áhersla lögð á að þróa og endurbæta búnað, enda markmiðið að vera leiðandi í framleiðslu hágæðaafurða á heimsvísu.

Hann segir að mikil og dýrmæt þekking á þessu sviði hafi verið byggð upp hjá Samherja, sem hafi skapað möguleika á að hanna og framleiða sértækar tæknilausnir, oft á tíðum í samvinnu við tækni- og iðnfyrirtæki.

Andrúmsloft frumkvöðla

„ Við byggingu og hönnun vinnsluhússins á Dalvík var farin sú leið að vinna náið með tækni- og hátæknifyrirtækjum og þar með varð til heilmikil þekking og reynsla innan okkar raða. Hérna starfar fólk með víðtæka menntun og reynslu í skapandi andrúmslofti frumkvöðla og saman höfum við þróað margvíslegar lausnir sem gera vinnslurnar öflugri í samkeppnisumhverfi. Við gætum vissulega farið þá leið að kaupa svo að segja alla þjónustu en þá er hún ef til vill ekki unnin af aðilum með næga innsýn í starfsemina. Það er í raun frábær staða fyrir mig sem tæknistjóra að vinna með starfsfólki með þessa miklu reynslu og þekkingu innan félagsins.”

Hröð þróun í þrívíddarprentun

Atli nefnir sem dæmi um verkefni, forritun iðnaðartölva, forritun róbóta, notkun þrívíddarprentara og gerð sérhæfðra teikninga í þrívídd.

„ Samherji er með þrívíddarprentara bæði á Dalvík og Akureyri sem prenta út hluti í mismunandi tegundum plasts. Í raun má segja að prentararnir séu í gangi allan sólarhringinn, þessi tæki prenta út alls konar hluti sem oft á tíðum fást ekki frá framleiðendum með skömmum fyrirvara. Í flestum tilvikum teiknum við sjálf viðkomandi hlut sem prentaður er út á staðnum. Þróunin í þrívíddarprenturum er hröð og notkunin á örugglega eftir að aukast enn frekar. Í raun er hægt að prenta út hvað sem er í þessum tækjum en búnaðurinn kallar líka á sérhæfða þekkingu, sem góðu heilli er til staðar hjá okkur.”

Vinnslulína sem hönnuð var af starfsfólki Samherja

„ Við erum þessar vikurnar að taka í notkun vélasamstæðu sem setur fiskmarning í öskjur, sem síðan eru frystar. Þessi búnaður var hannaður að mestu leyti af starfsfólki Samherja og er eftir því sem ég best veit sá eini sinnar tegundar í fiskvinnslu.

Þá er sömuleiðis nýbúið að taka í notkun róbóta sem raðar frauðplastkössum á vinnslulínuna. Þessi tækni var ‏unnin í samvinnu við fyrirtæki sem sérhæfir sig í sjálfvirknilausnum.“

Gaman að sjá hugmyndir verða að veruleika

„ Félagið alltaf með nokkur verkefni í gangi á sviði nýsköpunar og það er spennandi að sjá hugmynda- og þróunarvinnu verða að veruleika. Hjá Samherja starfar þéttur og góður hópur sem staðráðinn er í að vera áfram í fremstu röð.

Hér eru allir áhugasamir og leggja mikið á sig til að ná settum markmiðum. Stundum er sagt að Samherji sé öflugt nýsköpunarfyrirtæki og ég tek undir það,” segir Atli Dagsson tæknistjóri landvinnslu Samherja.