Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Samherja bráðabirgðaheimild vegna reksturs fiskþurrkunar á Laugum í Reykjadal. Heimildin gildir þar til nýtt starfsleyfi hefur verið gefið út vegna starfseminnar.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi um miðjan september úr gildi ákvörðun heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra um útgáfu starfsleyfis vegna fiskþurrkunar Samherja á Laugum. Úrskurðurinn byggði á því að við útgáfu starfsleyfis hafi heilbrigðisnefndin ekki byggt á fullnægjandi gögnum við mat á ástandi vatnshlota í nágrenni við starfsemina. Úrskurðurinn beindist ekki að vanköntum á starfseminni enda hafði öllum skilyrðum útgefins starfsleyfis verið fullnægt.
Um 20 manns starfa í fiskþurrkuninni á Laugum og er um að ræða stærsta vinnustaðinn á svæðinu fyrir utan sveitarfélagið sjálft, auk þess sem fiskþurrkunin er mikilvægur farvegur fyrir fullvinnslu afurða Samherja.
Samherji sótti í kjölfar úrskurðarins um nýtt starfsleyfi. Jafnframt var óskað eftir bráðabirgðaheimild Umhverfis- og orkustofnunar til að halda áfram rekstri á meðan umsókn um starfsleyfi er í vinnslu hjá heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra og bætt er úr þeim annmörkum sem voru á fyrri málsmeðferð. Sú heimild hefur nú verið veitt og gildir þar til starfsleyfi hefur verið gefið út, eða að hámarki í eitt ár. Samherja ber á þeim tíma að fylgja þeim skilyrðum sem fylgdu fyrra starfsleyfi og meðal annars tryggja reglubundna vöktun frárennslis samkvæmt uppfærðri vöktunaráætlun.
Heimild Umhverfis- og orkustofnunar tekur þegar gildi og getur starfsemin því hafist að nýju. Búast má við að hún verði með hefðbundnum hætti á allra næstu dögum.