Stórt skref í framkvæmdum við uppbyggingu Eldisgarðs

Framkvæmdir við fyrsta áfanga Eldisgarðs standa sem hæst. Mynd: Jón Steinar Sæmundsson
Framkvæmdir við fyrsta áfanga Eldisgarðs standa sem hæst. Mynd: Jón Steinar Sæmundsson

Nýverið lauk vinnu við boranir sjóhola vegna fyrsta áfanga Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar Samherja fiskeldis á Reykjanesi.

Boruð var 21 sjóhola sem eru ýmist 42 eða 36 metra djúpar. Vinna hófst við borun þann 12. janúar síðastliðinn og tók verkefnið um níu mánuði. Það var því stórt skref og fagnaðarefni þegar Ræktunarsamband Flóa og Skeiða lauk við borun á síðustu holunni.

Tvö teymi fyrirtækisins hafa skipt með sér verkinu og unnið í vikulöngum lotum á löngum vöktum. Að lokinni síðustu borvaktinni var hafist handa við að taka niður borinn og annan búnað og hefja brottför af svæðinu.

Hreinn jarðsjór er lykilþáttur

Jarðsjó fyrir landeldið í Eldisgarði verður dælt úr sjóholum og er hann fullsaltur. Hver og ein hola skilar um 500 lítrum á sekúndu af sjó.

Samkvæmt rannsóknum á sjó úr holunum er sjórinn mjög tær enda er hann síaður með náttúrulegum hætti í gegnum hraunið á Reykjanesinu. Hitastigið er ákjósanlegt og hentar mjög vel til eldisins.

Gott aðgengi að sjó er lykilþáttur í rekstri landeldisins og eitt af því sem gerir staðsetninguna á Reykjanesi ákjósanlega.

Uppbygging fyrsta áfanga í fullum gangi

Framkvæmdir við fyrsta áfanga Eldisgarðs standa nú sem hæst og er hópur starfsfólks Samherja fiskeldis með starfsstöð á framkvæmdasvæðinu ásamt verktökum.

Eldisgarður verður byggður í þremur áföngum og fullbúin á stöðin að geta framleitt um 36.000 tonn af óslægðum laxi árlega. Um er að ræða stærsta fjárfestingarverkefni í sögu Samherja. Um 60 manns koma til með að starfa við eldið í landeldisstöðinni þegar hún verður fullbyggð en í fyrsta áfanga munu starfa þar um 30 manns. Flest störfin verða þekkingarstörf. Þá mun stöðin njóta fulltingis þeirra 120 starfsmanna og sérfræðinga sem þegar í dag starfa hjá Samherja fiskeldi.

Gunnar Dagur Darrason rekstrarstjóri Eldisgarðs fjallaði á dögunum um verkefnið á atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Hér er hægt að nálgast upptöku af atvinnu- og framkvæmdaþinginu. Fróðlegt erindi Gunnars Dags hefst á 1:05:00.