Samherji sendir öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra hátíðarkveðju í tilefni sjómannadagsins í dag.
Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Íslandi síðan 1938 til að heiðra íslenska sjómenn og mikilvægi sjómennskunnar fyrir þjóðina. Er deginum fagnað víða um land með veglegri dagskrá.
Gott gengi í sjávarútvegi hefur verið samofið efnahagslegri velsæld þjóðarinnar. Þar gegna sjómennirnir lykilhlutverki enda væri engin útgerð starfandi án þeirra.
„Sjómennirnir eru hjartað í starfsemi okkar útgerðar enda eru öflugir sjómenn forsenda góðra aflabragða. Um leið og ég óska öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sjómannadags þá vil ég sérstaklega þakka sjómönnum Samherja fyrir þeirra framlag og vel unnin störf í gegnum árin,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf.
Meðfylgjandi er myndskeið af skipverjum á Björgu EA 7, ísfisktogara Samherja, sem var útbúið í tilefni dagsins.
Gleðilegan sjómannadag!