Upplýsingaskilti við Landslag

Upplýsingaskiltið er á áberandi stað / myndir samherji.is
Upplýsingaskiltið er á áberandi stað / myndir samherji.is

Útilistaverkið Landslag eftir listakonuna Brynhildi Þorgeirsdóttur hefur vakið verðskuldaða athygli en verkið var sett upp sl. sumar við fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík. Landslag nær yfir þrjú beð við fiskvinnsluhúsið og inniheldur þrjú fjöll, sjö steina, klett og sex form sem þakin eru melgresi, sem óx skammt frá húsinu. Saman mynda þessi listaverk eina heild.

Upplýsingar á íslensku og ensku

Nú hefur verið sett upp upplýsingaskilti við listaverkið, þar sem finna má skýringar á listaverkinu. Einnig er svokallaður QR kóði á skiltinu. Með því að nota myndavél í farsíma er hægt að skanna kóðann og skoða upplýsingaskiltið í símanum, bæði á íslensku og ensku. Með þessu vonast Samherji til að fólk njóti listaverksins sem best.

Brynhildur Þorgeirsdóttir segir að þessi skúlptúr sé skemmtileg viðbót við athafnasvæðið á Dalvík, sem verði vonandi góður staður til að staldra við og hugleiða.

Leitar til japanskrar garðamenningar

Brynhildur Þorgeirsdóttir hefur á löngum ferli sínum sem listakona skapað sitt eigið steinaríki og verk 

hennar eru í flestum söfnum landsins auk safna í ýmsum löndum austan og vestan hafs. Hún vinnur mikið með sandsteypt gler sem lýtur sömu lögmálum og hraunrennsli og eru verkin oftast lífrænir skúlptúrar, sem bera sterk einkenni höfundar. Brynhildur leitar gjarnan til japanskrar garðamenningar við gerð útilistaverka sinna en þar er lögð áhersla á að skapa jafnvægi og kyrrð, þar sem grunnurinn byggir á formi þríhyrnings og píramíta.

Hvalbak er þungamiðjan

Hvalbak kemur ítrekað fyrir í listsköpun Brynhildar. Hvalbak er í jöklafræði klöpp, sem skriðjökull hefur sorfið þannig að hún líkist helst baki á hval. Hvalbak er einmitt þungamiðjan í nýja útilistaverkinu á Dalvík. 

Sjá fleiri myndir hérna fyrir neðan.