Verkefnið snýst um að framleiða hágæðavöru

Hjalti Hjaltason verkstjóri hjá Samherja á Dalvík.
Hjalti Hjaltason verkstjóri hjá Samherja á Dalvík.

„Fjölbreytni er líklega einn helsti kosturinn við starfið, engir tveir dagar eru eins og alltaf einhverjar breytingar,“ segir Hjalti Hjaltason, verkstjóri í fiskvinnsluhúsi Samherja á Dalvík.

Hjalti fagnar 60 ára afmæli í dag. Hann hefur starfað við fiskvinnslu í hartnær 45 ár og verið verkstjóri í yfir þrjá áratugi.

Ferillinn hófst í saltinu

„Það var svo sem ekki um margt að velja hér á sínum tíma. Fiskurinn bara greip mann og hefur ekki sleppt síðan,“ segir Hjalti um þá ákvörðun að hefja störf í Salthúsinu á Dalvík um 16 ára aldur. Rætur hans liggja reyndar í landbúnaði, en Hjalti er alinn upp við sauðfjárbúskap í Svarfaðardal.

„Ég byrjaði að vinna í sláturhúsi hérna að hausti. Svo lauk sláturtíð og þá tók saltfiskurinn við. Það voru þessi hefðbundnu störf, salta í kör og rífa úr þeim, setja í stæður og pakka. Þetta var stór vinnustaður og fjöldi manns að vinna í saltinu. Svo vantaði mann í frystihúsið og ég fór þangað fljótlega,“ segir Hjalti.

Leiðandi í helstu tæknibyltingum

Hjalti hefur starfað við fiskvinnslu allar götur síðan, fyrst hjá Kaupfélagi Eyfirðinga og síðar öðrum félögum, en lengst af hjá Samherja. Á þessum tíma hefur hann sinnt ýmsum verkefnum. „Það er fátt sem maður hefur ekki prófað í vinnslunni. Fyrst vann ég við hausun, flökun og að vigta í bakka. Svo þegar lausfrystir kom þá var farið í þessa bitavinnslu, en fram að því hafði allt verið fryst í öskjur og blokkir. Eftir að mótunarvél var keypt þá var unnið myrkranna á milli. Bitum var raðað á frystinn í dagvinnu og svo tók við að forma blokkina og var oft unnið langt fram á kvöld,“ segir Hjalti.

Takturinn í vinnslunni hefur breyst umtalsvert í tímans rás, að sögn Hjalta. „Þarna í upphafi komu skipin, Björgvin og Björgúlfur, með afla að landi og það var allt unnið í frost. Stundum komu grálúðutímabil eða karfatímabil og sást kannski ekki þorskur í lengri tíma. Með tímanum hefur allt orðið vélvæddara og áhersla á ferskfiskvinnslu og hráefnisstýringu stóraukist.

Ætli stærsta einstaka breytingin framan af hafi ekki verið þegar fyrsta skurðarvélin kom til sögunnar. Það var gríðarlegt framfaraskref þegar hægt var að skera fiskinn í vélum,“ segir Hjalti.

Þess má geta að umrædd skurðarvél var sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum og var þróuð í samstarfi við Marel. Vélin, sem breytti fiskvinnslu á heimsvísu, var undanfari flæðilína sem komu til Dalvíkur 1997. Síðar var röntgen beinaleitarvél þróuð á Dalvík, sömuleiðis í samstarfi við Marel. Beinaleitarvélin var undanfari röntgenstýrðu vatnsskurðarvélanna sem tóku yfir allan skurð á flæðilínum. Dalvík hefur því verið í fararbroddi í þróun fiskvinnslu undanfarin 40 ár og hafa Hjalti og samstarfsfélagar verið leiðandi í allri þessari vinnu, átt stóran þátt í helstu tæknibyltingum og var Hjalti lengi vel helsti skurðarvélasérfræðingur á Íslandi.

Gott samstarf er lykilatriði

Hjalti lagði stund á fiskvinnslunám við sjávarútvegsbraut sem var starfrækt á Dalvík og útskrifaðist þaðan árið 1994. Hann tók við sem verkstjóri ári seinna og hefur sinnt því starfi í rúmlega þrjá áratugi. „Þetta felur aðallega í sér að stýra mannskapnum í störf og hafa áhrif á hvernig störfin eru framkvæmd. Við erum tveir verkstjórar og með góða flokkstjóra með okkur. Sjálfur hef ég verið meira í frystivörunni en í þessu ferska.“

Hann segir að hefðbundinn dagur hefjist á því að koma vinnslunni af stað en einnig að fara yfir breytingar á áherslum í skurði og pökkun, með öðrum orðum hvers konar vöru óskað er eftir. „Þá skiptir öllu máli gott samstarf við starfsfólk í sölumálum sem er í tengslum við erlenda kaupendur og auðvitað samspil með fiskvinnslunni á Akureyri. Verkefnið snýst um að meta hvaða hráefni er í boði hverju sinni og hvernig á að vinna það til að framleiða hágæðavöru og mæta kröfum viðskiptavina sem best,“ segir Hjalti.

Góður vinnustaður og duglegt samstarfsfólk

Hjalti er í hópi margra starfsmanna Samherja sem hafa langan starfsaldur hjá fyrirtækinu. „Þetta er góður vinnustaður, ekki spurning, annars væri maður ekki búinn að vera svona lengi í þessu.

Starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og er starfsfólk af ólíkum uppruna, með mismunandi styrkleika og sérhæfingu. Ég hef alltaf verið heppinn með samstarfsfólk og hér starfar í dag duglegt og metnaðarfullt fólk í margvíslegum störfum,“ segir Hjalti.

Nýja fiskvinnsluhúsið gjörbreytti aðstæðum

Eitt af því sem stendur upp úr í þróun starfseminnar á Dalvík er, að sögn Hjalta, opnun á nýju hátæknifiskvinnsluhúsi árið 2020.

„Það var náttúrulega alveg gríðarlegt stökk og langþráð breyting. Fyrstu dagarnir eftir að húsið opnaði eru mjög eftirminnilegir. Það voru talsverð læti og mikil vinna að koma öllu í gang og slípa til ferlana. En þetta hefur gjörbreytt vinnuaðstæðum og framleiðsluferlinu til hins betra.“

Sauðfjárbúskapur og skógrækt í frítímanum

Spurður um helstu áhugamál og hvað hann geri utan vinnu segir Hjalti að sauðfjárbúskapur og skógrækt skipi stóran sess. Hann býr ásamt fjölskyldu sinni á æskuslóðunum í Svarfaðardal og hefur lengi stundað sauðfjárrækt.

„Búskapurinn er bara rétt rúmlega í matinn núorðið. Þetta var meira áður, en við höfum verið að draga saman á undanförnum árum. Á móti kemur að ég er búinn að hella mér út í skógrækt og það tekur drjúgan tíma. Ætli þetta séu ekki helstu áhugamálin, ásamt auðvitað samveru með fjölskyldunni sem er númer eitt.“

Fagnar afmælinu með afastráknum

En hvað ætlar Hjalti að gera í tilefni af stórafmælinu?

„Þannig vill til að sonarsonur minn á afmæli degi á undan mér. Hann er sjö ára og vill halda upp á afmælið með afa sínum og það er auðvitað gagnkvæmt. Við ætlum því að halda sameiginlega upp á 67 ára afmæli og eiga góða stund með fjölskyldunni. Planið er svo að fara saman til Flórída um jólin,“ segir Hjalti Hjaltason.

Í tilefni dagsins var starfsfólki boðið upp á afmælistertu í morgunkaffinu í fiskvinnsluhúsi Samherja á Dalvík.