Vilhelm Þorsteinsson EA 11 á makrílveiðar

Vilhelm Þorsteinsson EA 11 siglir út Eyjafjörð í gærkvöld/mynd Þorgeir Baldursson
Vilhelm Þorsteinsson EA 11 siglir út Eyjafjörð í gærkvöld/mynd Þorgeir Baldursson

Uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, hélt í gærkvöld frá Akureyri til makrílveiða.

Fyrstu íslensku skipin hófu leit og veiðar fyrr í vikunni en þau mega veiða samtals 125 þúsund tonn, þar af eru veiðiheimildir Vilhelms Þorsteinssonar EA hátt í 14 þúsund tonn.

Líklega í Smuguna

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri segir að með fleiri skipum styttist væntanlega í að vertíðin hefjist fyrir alvöru. Rétt um tveir mánuðir eru liðnir frá því kolmunnavertíð lauk.

„ Við verðum að vona hið besta í upphafi vertíðar. Skipin sem eru komin á miðin eru suðaustur og austur af landinu en ég reikna fastlega með því að fara í Smuguna. Siglingin í Smuguna er nokkuð löng, tekur um einn og hálfan sólarhring og er lykilatriði við veiðar þar að útgerðir hafi á að skipa góðum og öflugum flota.“

Samstarf við önnur skip skilar góðum árangri

Síðustu árin hafa skip Samherja og Síldarvinnslunnar unnið saman á miðunum, sem hefur gefið góða raun að sögn Guðmundar.

„ Aflanum er safnað saman í eitt skip, með því móti kemst fiskurinn mun ferskari til vinnslu í landi. Samstarfið sparar líka umtalsverða orku, því með þannig vinnulagi er ekki verið að sigla í land með ónýtta burðargetu. Ég tel að þetta samstarf hafi gengið vel, markmiðið er alltaf að hámarka verðmæti aflans. Eins og ég segi, þá er ég þokkalega bjartsýnn á komandi vertíð, upphaf hverrar vertíðar er að vísu oft háð nokkurri óvissu. Og þannig er staðan akkúrat núna. Þessir þættir hafa ekkert breyst með árunum,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA 11.