Vilhelm Þorsteinsson EA losnaði frá bryggju í óveðrinu

Vilhelm Þorsteinsson EA-11 við Oddeyrarbryggju í gærkvöldi.
Vilhelm Þorsteinsson EA-11 við Oddeyrarbryggju í gærkvöldi.

Vilhelm Þorsteinsson EA-11, uppsjávarskip Samherja, losnaði frá bryggju við Krossanes í óveðrinu í gærkvöldi.

Skipið hafði verið vandlega bundið og frágengið en bryggjupollar sem skipið var fest við gáfu sig. 

Viðbragðsaðilar voru strax kallaðir á vettvang og kom dráttarbátur til aðstoðar. Áhafnarmeðlimum var komið um borð og tókst að ræsa vélarnar og sigla skipinu að Oddeyrarbryggju þar sem það var tryggilega fest.

Aðstæður voru mjög krefjandi, norðan stórhríð og bálhvasst. Með fumlausum og faglegum vinnubrögðum áhafnar og viðbragðsaðila tókst að ná stjórn á skipinu og koma því örugglega að bryggju. Skipið er, að því er virðist, óskemmt en það verður skoðað nánar við fyrsta tækifæri.