Vilhelm Þorsteinsson EA setur heimsmet í lönduðum loðnuafla

Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Fuglafirði í gær/myndir samherji.is
Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Fuglafirði í gær/myndir samherji.is

Vilhelm Þorsteinsson EA landaði í Fuglafirði í Færeyjum fullfermi af loðnu, 3,448 tonnum og bætti þar með nokkurra klukkustunda Íslandsmet Barkar NK sem landaði á Seyðisfirði um helgina 3,409 tonnum. Þessi systurskip eru þau burðarmestu í flotanum, metin falla með öðrum orðum hratt á þessari stærstu loðnuvertíð um langt árabil. Og þetta er ekki aðeins Íslandsmet í lönduðum loðnuafla, einnig heimsmet!

Stærsta holið 600 tonn

Alls tók rúmlega tuttugu klukkustundir að dæla úr Vilhelm Þorsteinssyni í Fuglafirði og segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri að Færeyingarnir hafi verið afskaplega ánægðir með gæði aflans og fituinnihald.

„Staðan er einfaldlega sú að bræðslurnar á Íslandi hafa ekki undan þegar vel veiðist og þess vegna var stefnan tekin á Færeyjar, siglingin er hátt í þrjú hundruð sjómílur frá miðunum austur af Langanesi. Við fylltum skipið í sjö holum, stærsta holið var 600 tonn og þá drógum við aðeins í eina og hálfa klukkustund. Annars vorum við oftast að draga í sex til átta klukkustundir, þannig að þetta gekk allt saman mjög vel, að vísu þurftum við að lóna í um hálfan sólarhring vegna brælu.“

Gott hráefni

Eins og fyrr segir tók rúmlega tuttugu klukkustundir að landa úr skipinu, Guðmundur segir að aflanum sé dælt beint vil vinnslu en ekki í tanka eins og tíðkast yfirleitt á Íslandi.

„Nei við erum nú ekkert sérstaklega að keppa á þessum systurskipum um Íslandsmetin, þetta eru einfaldlega mjög góð og öflug skip með mikla burðargetu. Það skiptir mestu að koma með gott hráefni að landi og þessi skip eru vel búin á allan hátt. Þannig var meðalhitinn á hráefninu 2,1 gráða þegar því var dælt til verksmiðjunnar.“

Fókusinná næsta túr

„Við leystum landfestar í Fuglafirði á sjöunda tímanum í morgun og nú er bara að sigla á miðin. Veiðin hefur verið góð undanfarna daga og verður vonandi svo áfram. Það verður væntanlega nokkuð þröngt á miðunum, því norski flotinn er mættur á svæðið. Þetta nýja skip hefur reynst afar vel og það var ánægjulegt að sigla í land með fullfermi. Við hugsum á svipuðum nótum og landsliðið í handbolta, fókusinn er á næsta túr.“