Yfirlýsing frá Samherja

Gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands hefur nú afhent Samherja þau gögn sem lágu til grundvallar þegar Héraðsdómur úrskurðaði um heimild til húsleitar og haldlagningar gagna hjá Samherja og tengdum félögum þann 27. mars síðastliðinn. Af gögnunum er ljóst að það er rétt sem haldið hefur verið fram af forsvarsmönnum Samherja, að félagið hafi farið að lögum og reglum.

Af lestri gagnanna má ljóst vera að þær ályktanir sem gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands hefur dregið eru að verulegu leyti byggðar á rangfærslum um eðli og framkvæmd viðskipta Samherja og tengdra félaga.

Forsvarsmenn Samherja fordæma þá harkalegu aðgerð sem beitt var með húsleit og haldlagningu gagna. Sú aðgerð hefur þegar valdið fyrirtækinu umtalsverðu tjóni. Hæglega hefði mátt komast hjá því tjóni með fyrirspurnum til Samherja. Slíkum fyrirspurnum hefði að sjálfsögðu verið svarað, eins og fjölmörgum öðrum sem borist hafa frá Seðlabankanum undanfarin ár.