Yfirlýsing vegna rannsóknar gjaldeyriseftirlits SÍ á málefnum Samherja hf.

Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um málefni Samherja hf. vil ég sem lögmaður félagsins taka eftirfarandi fram:

Þegar gjaldeyriseftirlit Seðlabanka Íslands gerði húsleit hjá Samherja hf. þann 27. mars sl. var húsleitarheimildin grundvölluð á rannsóknarheimildum í gjaldeyrislögum. Því hefur ítrekað verið haldið fram í fjölmiðlum að um hafi verið að ræða sameiginlega aðgerð embættis Sérstaks saksóknara og gjaldeyriseftirlitsins. Þetta er ekki rétt. Þeir starfsmenn Sérstaks saksóknara sem komu í starfsstöðvar Samherja umræddan dag tóku sérstaklega fram að þeir væru í láni frá embætti Sérstaks saksóknara sem aðstoðarmenn, en húsleitin og haldlagning gagna væri alfarið á vegum gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands. Því  var  haldið fram í ríkissjónvarpinu í kvöld að félagið sé grunað um skattalagabrot. Þetta er einnig rangt.  Forsvarsmönnum fyrirtækisins hefur einungis verið kynnt með óljósum hætti að rannsókn beinist að hugsanlegu broti á gjaldeyrislögum.  Það er ekki síst fyrir sögusagnir af þessu tagi, sem augljóslega eru mjög skaðlegar fyrir félagið, að nauðsynlegt er að gjaldeyriseftirlit Seðlabankans geri opinberar ástæður þeirrar harkalegu aðgerðar sem ráðist var í á starfsstöðum félagsins að morgni 27. mars sl.

Virðingarfyllst

Helgi Jóhannesson hrl