Yfirlýsing vegna umfjöllunar um breytingar á eignarhaldi Samherja hf.

Samherji hf. vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri vegna umfjöllunar í dag um breytt eignarhald í fyrirtækinu.

Aðaleigendur Samherja hf. hafa framselt hlutafjáreign sína í fyrirtækinu til barna sinna eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum. Var þetta gert annars vegar með sölu hlutafjár og hins vegar með fyrirframgreiddum arfi.

Undirritaður var kaupsamningur, vegna þeirra hlutabréfa sem voru seld, í ágúst 2019. Var samningurinn háður ýmsum fyrirvörum og gátu kaupin ekki gengið í gegn fyrr en þeim hafði verið aflétt. Gekk það svo eftir hinn 1. nóvember síðastliðinn og tilkynnt Samherja hf. samdægurs. Baldvin Þorsteinsson, einn eigenda þess félags sem keypti hlutabréfin, er búsettur í Hollandi og hefur þar lögheimili. Af þeirri ástæðu telst hann vera erlendur aðili í skilningi laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Vegna skýrra fyrirmæla sömu laga var Samherja hf. skylt að tilkynna atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um fjárfestingu Baldvins. Var tilkynningin send ráðuneytinu mánudaginn 4. nóvember sem var fyrsti virki dagurinn eftir að Samherja hf. bárust upplýsingar um að kaupin hefðu gengið í gegn.

Vefmiðillinn Kjarninn fjallaði í dag um þetta bréf til ráðuneytisins undir fyrirsögninni Tilkynnt um erlenda fjárfestingu í Samherja nokkrum dögum fyrir Kveiksþáttinn. Gerði Ríkisútvarpið sér svo mat úr þessari sömu umfjöllun í hádegisfréttum. Var framsetning beggja miðla með þeim hætti að tilgangurinn var augljóslega sá að gera breytingar á eignarhaldi Samherja hf. tortryggilegar með því að gefa í skyn að þær tengdust fjölmiðlaumfjöllun um starfsemina í Namibíu.

Eins og áður hefur komið fram stóð undirbúningur að breytingum á eignarhaldi Samherja hf. yfir síðastliðin tvö ár en áformin voru formlega kynnt stjórn félagsins um mitt ár 2019. Þá var áðurnefndur kaupsamningur undirritaður í ágúst sama ár. Samherji hf. fékk fyrst vitneskju um efnislegt inntak fyrirhugaðrar umfjöllunar Ríkisútvarpsins með bréfi hinn 25. október 2019. Það er því augljóst að þessir tveir atburðir eru algjörlega ótengdir.

Að öllu þessu virtu er það býsna ómaklegt af vefritinu Kjarnanum að gefa í skyn að áðurnefnd tilkynning til atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins tengist umfjöllun Ríkisútvarpsins frá 12. nóvember síðastliðnum. Þá ber að halda því til haga að starfsemi Samherja í Namibíu var í félögum undir Samherji Holding ehf. en engin breyting hefur orðið á eignarhaldi þess félags.