Yfirlýsing Ólafs Rúnars Ólafssonar, hrl. vegna ummæla Seðlabanka Íslands

Yfirlýsing frá Ólafi Rúnari Ólafssyni, hrl.
Það er rangt að Seðlabanki Íslands hafi kynnt stjórnendum Samherja hf. ástæður húsleitar hjá fyrirtækinu þriðjudaginn 27. mars sl. eins og fram kom hjá Ríkisútvarpinu að kvöldi 3. apríl og í Morgunblaðinu í dag, 4. apríl.

Við húsleitina framvísaði Seðlabankinn húsleitarúrskurðum þar sem það eitt kom fram að grunur væri um brot gegn lögum um gjaldeyrismál, án þess að tilgreint væri í hverju meint brot felast eða þeim lýst á nokkurn hátt. Lögmenn Samherja frá LEX og PACTA lögmönnum, sem mættir voru á vettvang strax við upphaf húsleitar leituðu ítrekað eftir því á vettvangi að upplýst yrði um með hvaða háttsemi talið væri að Samherji hefði brotið gegn lögunum. Seðlabankinn hefur staðfastlega neitað að upplýsa hvaða háttsemi Samherja það er sem Seðlabankinn telur brot gegn gjaldeyrislögum. Þar sem Samherji telur sig í einu og öllu fara að lögum í starfsemi sinni, getur félagið ekki brugðist við ásökunum þessum í starfsemi sinni.

Lögmenn Samherja afhentu þegar á hádegi, þriðjudaginn 27. mars, Seðlabankanum formlega kröfu um afhendingu þeirra gagna sem Seðlabankinn fékk húsleitarheimild sína eftir hjá héraðsdómi. Telja verður að þau gögn kunni að varpa ljósi á í hverju hin meintu lögbrot eiga að felast. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi 29. mars. Seðlabankinn hefur ekki afhent þau gögn né veitt stjórnendum eða lögmönnum Samherja hf. upplýsingar um ástæður aðgerða Seðlabankans. Í gær lögðu lögmenn Samherja inn kröfu hjá Hérðasdómi Reykjavíkur þar sem krafist er afhendingar gagna þeirra sem Seðlabankinn framvísað við dómara vegna húsleitarúrskurðarins, þar sem bankinn hefur ekki svarað kröfum um afhendingu gagna og því síður fært rök fyrir því hvers vegna nauðsynlegt sé að halda þeim gögnum frá Samherja. Krafan verður væntanlega tekin fyrir í héraðsdómi innan skamms.

Akureyri, 4. apríl 2012

Ólafur Rúnar Ólafsson, hrl.
Pacta lögmenn